<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:17:49" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:19:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:17:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar
    en þrátt fyrir mikla einbeitingu náði ég ekki að hlusta mér til gagns
    þannig að ég fyndi spurningu í andsvarinu. Mig langar því að taka þennan
    þráð upp aftur. Ég tek undir að auðvitað eigum við að reyna að nýta
    hlutina vel, almennt í öllu, og hafa öll mál eins skilvirk og hægt er. Ég
    vil bara hvetja hv. þingmann aftur til að fara inn í sitt bakland í
    ríkisstjórninni og ræða þetta þar. Hæg eru heimatökin þegar menn eru í
    meiri hluta á þingi. Þá er hægt að gera það. Það er margoft talað um að
    ríkisstjórnin sé samhent, menn syngi í sömu tóntegund o.s.frv. Það ætti
    því að vera auðvelt mál fyrir hv. þingmann að fara áfram með þetta. En þar
    sem engin spurning var í seinna andsvari hv. þingmanns þá læt ég máli mínu
    lokið hér, þó að tíminn sé ekki liðinn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>