<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:19:21" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:29:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:19:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við ræðum frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 hér.
    Það hefur margt fróðlegt komið fram í umræðunni nú þegar en það vakti
    óneitanlega athygli mína þegar maður fylgdist með mjög svo leikrænum
    tilþrifum á blaðamannafundi fjármálaráðherra og fleiri ráðherra
    ríkisstjórnarinnar þegar frumvarpið var kynnt á dögunum. Fyrsti punkturinn
    sem sló mig svolítið var, og þetta hefur komið fram í umræðunum hér í dag
    líka, hvaða sögu var verið að segja með frumvarpinu og því sem hefur verið
    bent á, að við séum að ná markmiði um hallaleysi. Þessu var fylgt eftir
    með því að teknar voru saman stórar tölur aftur í tímann um halla
    tiltekinna ára. En mér fannst alveg ósagt látið í hvaða samhengi, við
    hvaða aðstæður og í hvaða umhverfi í samfélaginu við vorum þegar þessi
    halli var. Ég held að það liggi alveg fyrir að á árunum 2019–2024 gekk
    yfir íslenskt samfélag mjög mikið af utanaðkomandi áföllum. Ég held að það
    sé enginn sem geti andmælt því. Þetta byrjaði með falli WOW air sem hafði
    töluverð áhrif til hins verra hér innan lands. Svo kom auðvitað
    Covid-faraldurinn sem var risastór viðburður hér, rétt eins og annars
    staðar í heiminum, og gríðarlega kostnaðarsamur fyrir ríkissjóð. Þegar við
    vorum einhvern veginn loksins að komast á lappirnar út úr þeim öldudal
    tóku við jarðeldar á Reykjanesi sem leiddu á endanum til þess að það
    þurfti að kaupa upp húsnæði í heilu sveitarfélagi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Útgjöld ríkissjóðs vegna þessara útgjalda voru gríðarlega há og
    mæld í hundruðum milljarða, þannig að eðlilega varð halli þar á. Það
    hlýtur að vera hluti af einhvers konar ábyrgri umræðu í stjórnmálum og
    frásögn og kynningu mála að taka fram hvert var samhengið og hverjar voru
    orsakirnar. Það væri svo sem líka heiðarlegt, ef við erum farin aðeins að
    rifja þessa sögu upp, að halda því til haga að í hvert einasta skipti sem
    þáverandi ríkisstjórn kom og kynnti aðgerðir og fjárútlát í tengslum við
    t.d. heimsfaraldur þá kom stjórnarandstaðan á þeim tíma og sagði að ekki
    væri nóg að gert; það ætti að ganga lengra og það ætti að eyða meiru.
    Höldum þessu alveg til haga. Þáverandi stjórnarandstaða stóð ekki hér og
    lagði til að við ættum að vera mjög gagnrýnin á sóttvarnaraðgerðir eða
    fjárútlát úr ríkissjóði, þvert á móti talaði hún í allt aðra átt á þeim
    tíma. En gott og vel, þetta var nú svona aðeins varðandi
    söguupprifjunina.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fjárlagafrumvarpið núna gerir ráð fyrir að ríkissjóður verði
    hallalaus á næsta ári og því ber út af fyrir sig að fagna. En það er ekki
    sama hvernig hallaleysinu er náð; er því náð með aðhaldi og tiltekt í
    rekstri ríkissjóðs eða er því náð með því að sækja meiri tekjur hingað og
    þangað? Með öðrum orðum: Hvernig næst hallaleysið? Hvernig er það fengið
    fram? Það blasir við í tilfelli þessarar ríkisstjórnar að hallaleysinu er
    ekki náð með tiltekt eða hagræðingu heldur er það sótt með auknum tekjum í
    formi gjaldtöku og skattheimtu. Það er í raun, virðulegur forseti, mjög
    sérstakt að sjá og það kom greinilega mörgum, og ekki bara mér, á óvart
    hvað ríkisstjórnin gengur langt í gjaldahækkunum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef við förum aðeins aftur í tímann, bara í síðasta mánuð, miðjan
    ágúst eða 19. ágúst, ég held að ég fari rétt með, þá kynnti Seðlabankinn
    nýja stýrivaxtaákvörðun þar sem stýrivextir voru hækkaðir í þriðja sinn í
    röð. Seðlabankinn gaf við það tilefni ríkisstjórninni ákveðna leiðsögn þar
    sem bankinn sagði í sinni umsögn og sinni fréttatilkynningu að opinberar
    gjaldahækkanir væru leiðandi þáttur í verðbólguþróun hér innan lands.
    Þarna var bankinn að vísa til þeirra gjaldahækkana sem voru komnar fram.
    Þá er það sem var líka dálítið athyglisvert þegar hæstv. forsætisráðherra
    kom fram í fjölmiðlum strax í kjölfarið og viðurkenndi að það hefði
    sennilega mátt ganga skemur í gjaldahækkunum hjá hinu opinbera. Svo ég
    rifji það aftur upp þá var þetta bara seinni partinn í ágúst, kannski
    þrjár vikur síðan eða svo.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hver eru svo næstu skref? Ríkisstjórnin, sem hefur haft það að
    meginmarkmiði sínu að ná tökum á efnahagsmálum, gerir akkúrat það sem
    Seðlabankinn varaði við og hækkar gjöld langt umfram verðbólgumarkmið.
    Nánar tiltekið ganga forsendur fjárlaga út á að hækkunin verði 5,2% þegar
    verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5% — þetta er meira en tvöfalt hærra en
    það. Í stað þess að ríkisstjórnin slái tóninn með hóflegum gjaldahækkunum
    og gangi á undan með góðu fordæmi sem aðrir geta fylgt er farið í
    þveröfuga átt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem er svo vont við þetta er að ríkisstjórnin sendir með þessu
    ákveðin skilaboð út í samfélagið. Skilaboðin eru á þá leið að það sé í
    raun og veru alveg viðurkennt að hækka gjöld um 5,2%. Þá er nærtækt fyrir
    aðra stóra leikendur í þjóðfélaginu að horfa til sama viðmiðs. Þetta býr
    til einhvers konar skjól fyrir aðra aðila til þess að hækka sínar
    gjaldskrár sem þessu nemur. Með öðrum orðum: Það er búið að gefa grænt
    ljós frá hinu opinbera um að þetta sé hækkun sem er í lagi. Þetta er
    sennilega líklegasta ástæða þess að verðbólguvæntingar haldast háar. Þrátt
    fyrir alls konar stór orð hér frá þingmönnum stjórnarmeirihlutans, um að
    með þessum fjárlögum sé loksins verið að kveða verðbólguna í kútinn, er
    auðvitað tekið eftir því að viðbrögð í samfélaginu hafa verið þvert á það.
    Þetta sýnir að verðbólguvæntingar eru háar og fólk og markaðurinn er að
    búast við því að verðbólgan haldist há fram á næsta ár.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En þetta er auðvitað ekki allt, virðulegi forseti,
    fjárlagafrumvarpið hefur líka að geyma ýmiss konar skattahækkanir. Þessar
    breytingar eru oft settar fram með ýmiss konar tæknilegum útfærslum en
    hafa þó allar sama markmiðið og sömu niðurstöðuna; að hækka skattbyrði
    fólks og fyrirtækja. Við sjáum þetta t.d. í persónuafslættinum sem var
    breytt þannig að hækkun vegna framleiðniviðmiðs er nú tekin út. Þetta er
    afskaplega tæknilegt og ég skora á þá sem eru að hlusta að segja þetta orð
    þrisvar sinnum upphátt án þess að þeir hiksti. En niðurstaðan er samt
    alltaf sú sama: Hækkun persónuafsláttar verður minni en ella. Það er minna
    eftir í veskinu hjá því fólki sem greiðir skatta í landinu en ella. Maður
    veltir því stundum fyrir sér hvort ríkisstjórnin nánast leiti að
    tæknilegustu kostnaðarliðunum til að fikta aðeins í til að fólk eigi
    dálítið erfitt með að halda þræði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef við horfum á hvernig þetta kemur út hjá fyrirtækjum eru stærstu
    póstarnir í fjárlagafrumvarpinu að það er lagt á banka annars vegar og
    ferðaþjónustu hins vegar. Bankaskatturinn, sem er afar hár fyrir, er
    hækkaður verulega. Og þó að þetta sé atriði sem er án efa valið til þess
    að reyna að velja sér svona þægilegan andstæðing, bankana sem innheimta
    hjá fólki og fyrirtækjum mánaðarlegar afborganir og lán, þá þarf alltaf að
    spyrja: Hverjar eru endanlegu afleiðingarnar? Hvaða áhrif hefur þetta á
    viðskiptavini bankanna, venjulegt fólk? Auðvitað þýðir þetta það að kjörin
    verða verri og það mun taka lengri tíma en ella að ná niður vaxtakjörum
    heimila og fyrirtækja. Það er auðvitað fróðlegt í þessu samhengi að rifja
    upp orð hæstv. utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar í þessum efnum hér
    í þessum sal frá því í júní 2019 þegar hún sagði að bankaskattur væri allt
    of hár og skilaði sér beint út í verðlag til viðskiptavina
    bankans.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það verður að nefna sérstaklega
    ferðaþjónustuna sem fer afar illa út úr fyrirhuguðum breytingum
    fjárlagafrumvarpsins. Þar er boðað að skatta- og gjaldahækkanir á greinina
    verði með öllu líklega um 10 milljarðar. Til samanburðar má nefna að
    heildarhagnaður greinarinnar árið 2024 nam 20 milljörðum. Einn stærsti
    pósturinn er skattahækkun á baðlón sem hefur verið hér til umræðu í dag.
    Það er óneitanlega dálítið athyglisvert, virðulegi forseti, að taka eina
    tiltekna starfsemi, baðlón, út fyrir sviga. Aftur vaknar spurningin hvort
    ríkisstjórnin sé að reyna að velja sér andstæðing eða velja sér málefni.
    Hér hefur verið talað um það í dag að þetta sé einhvers konar lúxusvara.
    Að heyra svona orð koma frá fólki sem segist síðan í aðra röndina vilja
    byggja upp íslenskt atvinnulíf er í raun alveg ótrúlegt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Maður veltir fyrir sér: Hvar er fólk eiginlega statt sem segir
    svona? Gerir hv. ríkisstjórn sér ekki grein fyrir því að ferðaþjónusta er
    í samkeppni við ferðaþjónustu í öðrum löndum? Við getum ekki leyft okkur
    að hugsa um þá starfsemi sem er í ferðaþjónustunni sem einhvers konar
    lúxusvöru fyrir okkur. Með sömu rökum væri væntanlega nánast allt sem
    viðkemur ferðaþjónustu einhvers konar lúxusvara; hótel, veitingastaðir,
    rútuferðir, ferðalög. Við verðum að hugsa um þetta út frá samkeppni,
    hvernig við ætlum að verðleggja okkur og hvar við ætlum að stíga niður.
    Það á að taka þennan afmarkaða geira og hækka hann sérstaklega úr 11% upp
    í 25% virðisaukaskatt. Þetta þýðir að ef þessu er varpað beint út í
    verðlagið má reikna með að hækkun á miðaverði fyrir t.d. eina staka ferð í
    baðlón sé líklega á bilinu 1.500–2.000 kr. fyrir hvern gest, en þetta er
    aðeins misjafnt eftir því hvert miðaverðið er. Maður veltir því fyrir sér,
    virðulegi forseti, hvernig starfsfólk baðlónanna ætlar að standa þarna og
    horfa í augun á sínum viðskiptavinum og útskýra þetta. Ættu þau kannski að
    grípa til þessara röksemda? Þetta er auðvitað bara lúxusvara, þú hlýtur að
    skilja það að hún verður hækkuð hér reglulega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég sé, virðulegur forseti, að tími minn er að klárast þannig að ég
    ætla aðeins að stytta mál mitt. En það er auðvitað mjög áberandi að
    framlagning fjárlagafrumvarpsins hefur ekki haft þau áhrif sem
    ríkisstjórnin ætlaði. Verðbólguvæntingar hafa nú bara frekar farið upp á
    við heldur en hitt. Greiningaraðilar voru flestir á sama máli eftir að
    fjárlagafrumvarpið var kynnt. Gjaldahækkanirnar eru sérstaklega nefndar og
    þær munu ýta undir verðbólgu sem er kannski alveg <ns:bjalla/> sérstaklega
    grátlegt því það var akkúrat það sem var búið að vara ríkisstjórnina
    við.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>