<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:29:42" skst="SandrS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:31:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:29:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir þessa
    framsögu. Ég er í rauninni með eina meginspurningu til þingmannsins.
    Öflugir innviðir eru auðvitað grunnforsenda verðmætasköpunar og ég held að
    við séum alveg sammála um það. Ég hjó eftir því að þingmaðurinn sagði að
    það væri einungis verið að hækka skatta og það sem mig langaði að varpa
    ljósi á eru jákvæðar aðhaldsaðgerðir sem er verið að fara í. Það er verið
    að fækka ríkisstarfsmönnum og stöðugildum um 1% og það er áætlað að draga
    úr árlegum launakostnaði um 3,2 milljarða. Það er hagræðing í opinberum
    innkaupum með því að fara í aukna samræmingu og betri nýtingu á
    rammasamningum. Það er verið að sameina Matvælastofnun, Fiskistofu og
    Verðlagsstofu skiptaverðs. Það er sameining sýslumannsembætta og það er
    sameining HMS og Skipulagsstofnunar. Svo eru ráðuneytin að skera niður hjá
    sér. Í heildina er í rauninni verið að spara um 2 kr., þ.e.
    aðhaldsaðgerðir skera niður um 2 kr. en tekjuöflunin er 1 kr. Mín spurning
    er: Hvernig fær þingmaðurinn það út að einungis sé verið að hækka skatta
    en það séu engar aðhaldsaðgerðir?</ns:mgr>

    <!--Það er ógreinilegt hvað hún segir alveg í lokin. //glg-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>