<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:31:28" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:33:48 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:31:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina og andsvarið. Hv.
    þingmaður virðist furða sig á umræðu um að það sé verið að hækka skatta.
    Ég get ekki annað en vitnað í sjálft fjárlagafrumvarpið. Þar eru ýmiss
    konar skattahækkanir tilgreindar. En það er auðvitað alveg rétt. Það er
    kafli líka þar um aðhaldsaðgerðir og ég geri ekki lítið úr því sem þó er
    gert. En ég verð að segja að maður hefði viljað sjá gengið miklu lengra í
    þeim efnum og ég leyfi mér bara að vitna til þess sem er að gerast í
    Reykjavíkurborg núna. Þar er nýr meiri hluti sem tók við núna í kjölfar
    kosninga og minn flokkur og flokkur hv. þingmanns eru nú aðilar að þeim
    ágæta meiri hluta. Þar finnst mér áberandi að það er verið að ganga miklu
    skýrar og beinna til verks. Það er verið að fara í vissulega
    sársaukafullar aðgerðir sem engum þykja skemmtilegar. Það er verið að
    fækka störfum. Það er verið að fara í mikla hagræðingu þar innan húss. Ég
    geri ekki lítið úr því sem þó er nefnt hér, en ég held að hv. þingmaður
    hljóti að vera sammála því að þetta er nú í sjálfu sér ekki mjög langt
    gengið. Fækkun starfsmanna; það er talað um 200 stöðugildi hjá öllu hinu
    opinbera batteríi. Þetta er ekki ýkja mikið. Opinber innkaup, jú, jú,
    þetta er svona klassískur frasi, að menn ætli að sækja í opinber innkaup
    einhverjar tölur. Það hlýtur auðvitað að vera markmið alltaf og öllum
    stundum hjá, hvort sem það er ríki eða sveitarfélögum eða öðrum, að hafa
    opinber innkaup sem hagkvæmust og eitthvað er um sameiningu stofnana,
    vissulega. Ég hefði gjarnan viljað sjá gengið lengra í þessum
    efnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég fæ kannski, fyrst ég var spurður, að varpa þeirri spurningu til
    baka til þingmannsins hvort hún líti svo á að það sé nóg að gert.
    Svigrúmið er ekki mikið, þetta eru 5 milljarðar og sagan sýnir okkur það
    að í meðförum þingsins hér hafa fjárlög eiginlega alltaf togast yfir á
    verri hliðina þegar að þessu kemur. <ns:bjalla/> Ég spyr hvort við eigum
    ekki að ganga lengra og hvort hún hafi ekki áhyggjur af því að 5
    milljarðar séu kannski fulllítið svigrúm.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>