<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:35:33" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:37:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:35:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka andsvarið. Það er áhugavert að heyra
    hvernig hv. þingmaður lýsir þessu, að það sé auðvitað búið að sækja
    ákveðnar tekjur í formi skatta. Það sem ég hef kannski svolitlar áhyggjur
    af er að manni finnst svolítið vanta upp á svona greiningar og áhrifamat á
    þessu. Það er verið að taka ferðaþjónustuna alveg sérstaklega fyrir og
    hættan þar er auðvitað sú að, eins og ég gat um í ræðu minni, að við erum
    í samkeppni, ekki bara hér innan lands. Þetta snýst ekki um að Íslendingar
    fari á milli baðlóna og finni ódýrasta baðlónið. Við erum í samkeppni sem
    ferðaþjónustuland við önnur ferðaþjónustulönd. Það verður nú að segjast,
    svo maður sé alveg hreinskilinn, að það hefur verið okkar áskorun,
    Íslands, að gagnrýnin sem ferðamenn koma með fram er að við þykjum ekki
    ódýr. Við skulum alla vega orða það þannig. Þannig að það kemur mér
    svolítið á óvart hvað ríkisstjórnin er köld að þessu leyti. Fyrirtækin
    hafa væntanlega litlar aðrar bjargir en að reyna að velta þessu út í
    verðlagið sem getur aftur magnað upp þessa tilfinningu ferðamannsins og
    svona getur verið viðkvæmt. Það þarf ekki nema eina tvær, þrjár færslur
    sem fara á flug eða eitthvað slíkt til þess að valda hér ákveðnum
    álitshnekki o.s.frv. Nú er ég ekkert að boða að þetta sé akkúrat það korn
    sem fylli þann mæli en maður veltir fyrir sér: Hefur þetta eitthvað verið
    metið og kannað?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eins og fram hefur komið varðandi ferðaþjónustuna, og það er
    kannski ekkert eftir afskaplega miklu að slægjast. Það hefur verið talað
    um að hagnaður af greininni hafi verið um 20 milljarðar, ég held að það sé
    miðað við árið 2024, ef ég fer rétt með. Það hefur verið talað um að
    greinin sé afskaplega skuldsett. Mér finnst því dálítið varhugavert hvað
    eigi að sækja mikið þangað, alveg sammála. Ég held að við séum bæði í
    stjórnmálaflokkum sem hugsa hið opinbera og ríkið svolítið þannig að það
    megi kannski ganga lengra í aðhaldsaðgerðum. En ég tek undir með
    þingmanninum: Maður vonar að það komi eitthvað meira hér undir meðferð
    fjárlaga á þinginu hvað þetta varðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>