<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:38:19" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:48:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:38:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við ræðum hér fjárlög ríkisstjórnarinnar. Ég verð að
    viðurkenna að ég varð fyrir vonbrigðum. Við töluðum um litlaus fjárlög
    hérna, fyrstu fjárlögin, og ég held að það hafi nú verið lýsing sjálfs
    hæstv. fjármálaráðherra á sínum fjárlögum. Ég átti von á einhverju meiru
    frá þessari ríkisstjórn á þessum tímapunkti. Auðvitað fögnum við því öll
    að sýna fram á hallalaus fjárlög. Ég tek þátt í því. Mjög mikilvægt.
    Hallaleysið er samt frekar lítið. Þetta er alveg pínu ponsulítið. Við
    getum ekki séð það á framkvæmd þessarar ríkisstjórnar, það sem af er þessu
    kjörtímabili, að áætlanir standist. Það er ekki svo. En auðvitað vonum við
    að þessi fjárlög verði hallalaus. Það er uppsafnaður halli á ríkissjóði.
    Alveg rétt. Hvað eru þetta? 866 milljarðar. Það þarf að vinna bug á þessu.
    Þessi ríkisstjórn á nú reyndar alveg 134 milljarða af þessu þó að hún sé
    ekki búin að vera lengur við völd nema í þessi rúmu tvö ár og ekki hefur
    verið Covid í gangi og ekki hafa verið eldar á Reykjanesi eða einhver
    risaáföll. Nei, hallinn hefur verið alveg sjálfskapaður af þessari
    ríkisstjórn. En hvað á þá að gera til að ná stjórn á ríkisfjármálunum og
    vinna með Seðlabankanum eins og okkur hefur verið tíðrætt um?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það eru fyrst og fremst skattahækkanir og það
    er ekki í fyrsta skipti sem þessi ríkisstjórn hækkar skatta. Síðan þau
    tóku við ríkisrekstrinum hafa verið hækkaðir skattar á hverju einasta ári
    á allan almenning í landinu, ekki bara sjávarútvegsfyrirtækin eins og það
    var nú mikilvægt. Nú er ferðaþjónustan líka undir og allur almenningur í
    landinu, alveg skýrt. Það kristallast því kannski ágætlega í þessari
    umræðu hvað hugmyndafræði þeirra flokka, þeirra vinstri flokka sem sitja í
    ríkisstjórn og míns flokks, Sjálfstæðisflokksins, er ólík. Í
    Sjálfstæðisflokknum tölum við fyrir því að stækka kökuna. Við tölum fyrir
    því að það þurfi að skapa verðmæti í samfélaginu, því að þegar fyrirtækin
    í landinu geta skapað verðmæti geta þau borgað hærri laun. Þau geta borgað
    hærri skatta til ríkisins og þá er ég ekki að tala um prósentuna heldur
    upphæðina, krónutöluna. Með því verður til aukið svigrúm hjá hinu opinbera
    til að standa undir öflugri velferðarþjónustu. </ns:mgr>

    <ns:mgr>En hugmyndafræðin hjá þessari ríkisstjórn, sem nú ræður ríkjum,
    gengur ekki út á það. Það kann vel að vera að á einhverjum tyllidögum hafi
    einhverjir sem hafa stundum kennt sig við hægri viljað meina það og haldið
    því fram. En það er alveg ljóst á öllum aðgerðum þessarar ríkisstjórnar að
    það er engin hugmyndafræði sem gengur út á það á bak við þessi fjárlög.
    Meira að segja heyrði ég, virðulegur forseti, hv. þm. Sigurjón Þórðarson,
    formann fjárlaganefndar, segja hér fyrr í dag: Ja, hvenær eru menn að
    hækka skatta og hvenær ekki? Ég get alveg sagt ykkur: Núna er verið að
    hækka skatta. Síðasta ár var verið að hækka skatta. Það sem þessi
    ríkisstjórn hefur gert er að hækka skatta. Þetta er ekki einhver
    heimspekileg spurning, þetta eru bara staðreyndir á blaði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þm. Sigurjón Þórðarson sagði líka að það væri fínt að fá
    ábendingar um hvar er hægt að spara eða ná í jafnvel enn meiri tekjur,
    virðulegur forseti. Ég ætla að svara því til að það er örugglega hægt að
    spara. Ég er tilbúin að koma með ríkisstjórnarflokkunum í það að fara yfir
    ríkisfjármálin og finna leiðir til að spara, alveg tilbúin í það. En hvar
    er hægt að finna meiri tekjur? Í mínum huga er það ekki með því að hækka
    skattprósentur. Það er með því að gefa atvinnulífinu í landinu svigrúm til
    að skapa þessi verðmæti. Með auknum verðmætum verða til meiri fjármunir í
    ríkiskassanum. Svo einfalt er það. Þegar hv. þingmenn, stjórnarliðar, koma
    hingað upp og segja að það sé nóg til og vísa þá m.a. í fjármálakerfi —
    því við heyrum jú svakalega háar tölur sem venjulegur einstaklingur eins
    og ég tengi ekkert svakalega vel við þegar verið er að ræða hagnað
    bankanna — þá koma hér upp þingmenn og segja: Þar er nóg til. En hverju
    mun hækkun skatta á banka skila? Hæstv. fjármálaráðherra viðurkenndi það
    sjálfur í viðtali eftir að hann kynnti fjárlögin að auðvitað muni þetta
    hafa áhrif á gjaldskrá fyrirtækjanna. Hæstv. utanríkisráðherra, formaður
    Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sagði í þessum ræðustól — fór
    að útskýra það þegar verið var að fjalla um hækkun bankaskatts á sínum
    tíma hvaða áhrif það myndi hafa á almenning í landinu og
    samkeppnisstöðuna. Þetta eru nú sömu flokkar og hafa nýverið verið að
    leiða umræðuna um að Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið og ein af
    rökunum fyrir því voru að þá myndi aukast samkeppni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hvað heldur fólk að það sé verið að gera þegar
    það hækkar skatta umfram það sem þekkist annars staðar í kringum okkur á
    fyrirtæki í ákveðnum atvinnugreinum? Haldið þið að það sé til að auka
    samkeppni? Til að fá fleiri fyrirtæki til að koma inn á íslenskan markað?
    Nei, auðvitað ekki. Fyrir þessu liggja lærðar skýrslur og meira að segja,
    eins og ég nefndi, hæstv. ráðherra Þorgerður Katrín, hélt góða ræðu um það
    hér fyrir nokkrum árum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er auðvitað af ýmsu að taka og við munum
    gera það á næstu dögum og hægt að fara í ýmsa liði fjárlaganna. Þetta er
    auðvitað það sem mun marka stefnuna hjá þessari ríkisstjórn á komandi ári.
    Ég er hér að tala kannski sérstaklega um þessa stóru mynd. Auðvitað þurfum
    við að sjá til þess að ríkið sé rekið með afgangi. Ég studdi hallarekstur
    á sínum tíma, ekki út af því að ég er svo hrifin af hallarekstri, heldur
    vegna þess að ég er svo hrifin af því að ríkið geti tekið á sig byrðar
    þegar þarf á því að halda. Þegar við þurftum að bjarga fyrirtækjum, til að
    mynda ferðaþjónustunni í Covid og heimilum þar sem fólk missti vinnuna,
    þegar við þurftum að bjarga íbúum Grindavíkur þegar þeir misstu heimili
    sín út af eldum, þá vildi ég að ríkissjóður myndi nota sitt bolmagn og
    aðstoða. Þess vegna varð til hallarekstur og núna ættum við að vera búin
    að snúa þessu við og það hefði verið hægt að gera það fyrr. Ég er alveg
    sannfærð um að þeir sem nú ráða ríkjum vita það, alla vega ákveðnir
    aðilar, en það er auðvitað dýrt og erfitt þegar þarf að uppfylla öll
    kosningaloforð og sérstaklega kannski fyrir flokka sem lofuðu mjög miklu
    fyrir kosningar. Það var reyndar líka lofað að hækka ekki skatta en það er
    auðvitað löngu búið að brjóta það loforð. Ég hef nefnt hér bankaskattinn.
    Eigum við að ræða þetta og baðlónin? Maður finnur fyrir því þegar maður
    ferðast um landið og heimsækir þessa staði hversu miklar áhyggjur eru hjá
    sveitarstjórnarfólki, hjá atvinnurekendum á landsbyggðinni, af því hvaða
    áhrif hann mun hafa á þessar fjárfestingar og uppbyggingu sem búið er að
    fara í úti um land allt. Við getum líka velt fyrir okkur endurgreiðslu
    virðisaukaskatts af íbúðarhúsnæði. Hvaða áhrif mun hún hafa á
    íbúðamarkaðinn til lengri tíma litið?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Af öllum þessum vondu ákvörðunum sem ég var
    hér að fara yfir þá held ég að 5,2% gjaldskrárhækkanirnar eða
    krónutölugjöldin sé líklega það versta. Hvaða skilaboð er ríkisstjórnin að
    senda inn á vinnumarkaðinn um þessar mundir? Hvaða skilaboð eru það?
    Forsendur kjarasamninga eru brostnar, það er ljóst, og á þá bara að setja
    þetta á meiri ís? Að láta sér detta það í hug á þessum tímapunkti að fara
    í 5,2% hækkanir á þessum krónutölugjöldum er auðvitað að gefa öðrum skjól
    til að gera það sama. En eftir hverju hafa aðilar vinnumarkaðarins verið
    að kalla? Þeir hafa einmitt verið að kalla eftir því að við myndum öll
    standa saman eins og gert var þegar við náðum þessum kjarasamningum. Þá
    var farið fram á það af verkalýðshreyfingunni að við færum ekki í of
    miklar hækkanir. Á sama tíma ætluðu ríkið, sveitarfélögin og aðilar á
    markaði að halda að sér höndum. Það gerðum við fyrst um sinn en þessari
    ríkisstjórn hefur tekist að tapa og glata þeim bolta algerlega. Það er
    mjög miður. Við heyrum það núna að aðilum vinnumarkaðarins, fólkinu sem
    talar fyrir launafólk í landinu, <ns:bjalla/> er verulega brugðið og ég
    hef þar af leiðandi miklar áhyggjur af því sem koma skal í vetur.</ns:mgr>

    <!--segir "að við færum ekki í of miklar launahækkanir". Skrítið að verkalýðshreyfing vilji ekki of miklar launahækkanir", hún á líklega við gjaldahækkanir (hjá ríkinu, sem sagt "við" í setningunni). Tek út "launa"/st.-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>