<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:48:41" skst="SandrS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:50:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:48:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir þessa
    framsögu, það var margt áhugavert sem kom þar fram. Litlaus fjárlög; ég
    svona velti fyrir mér hverju þingmaðurinn átti von á sem væri ekki jafn
    litlaust, hvaða fleiri aðgerðum, þannig að ég hlakka til að heyra það frá
    þingmanninum hér á eftir hverju hún átti von á og hvað hún hefði viljað
    sjá. Ég er hjartanlega sammála því sem kom fram að við viljum stækka
    kökuna, alveg hjartanlega sammála, og við þurfum auðvitað að horfa líka á
    kökuna í heild sinni. Ef við tölum um það þá langar mig að fara aðeins
    yfir skatttekjur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu vegna þess að það
    að um sé að ræða einhver tímamót í skattinnheimtu ríkisins er ekki sönn
    fullyrðing. Ef við förum til ársins 2014, eins og ég sagði áðan, þá eru
    skatttekjur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu 28,2%. Fyrir 2027 erum
    við í 23,9%. Fyrir árið 2015 erum við í 29,2%. Í ár, 2027, erum við í
    23,9%. <!--Hún segir 2027 töluna tvisvar, veit ekki hvort það sé viljandi eða ekki
/ ii--> Ef við förum yfir í 2016 þá erum við í 27,7%. Svo hérna árið 2017 erum
    við í 23,7%, ég velti fyrir mér hver var fjármálaráðherra þá. Við erum
    sammála um að stækka kökuna en að hér sé um að ræða tímamótaskattinnheimtu
    þegar við erum að skera niður um 2 kr. á meðan við erum að sækja tekjur
    upp á 1 kr. — spurningin er þá í rauninni: Hverju átti þingmaðurinn von á?
    Og hvernig fær þingmaðurinn það út að það séu meiri skattar heldur en
    hagræðing í þessu fjárlagafrumvarpi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>