<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:50:46" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:52:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:50:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hverju átti
    ég von á? Þegar ég notaði orðið litlaust hér þá var ég að vísa til orða
    hæstv. fjármálaráðherra sjálfs við fyrri fjárlögum og fjármálaáætlunum. En
    ég held að ég geti alveg verið sammála hv. þingmanni um að þessi fjárlög
    eru litrík, þau eru rosalega litrík. Mér bara líkar ekkert þeir litir sem
    þarna eru teiknaðir upp því þeir eru skattahækkanir. Þegar hv. þingmaður
    segist taka hér undir það að stækka kökuna þá spyr ég: Hvar í þessu
    fjárlagafrumvarpi eða aðgerðum þessarar ríkisstjórnar er hægt að segja að
    þessi ríkisstjórn sé að reyna að stækka kökuna? Í hverju? Í hvaða aðgerðum
    hefur verið fært eitthvað súrefni til atvinnulífsins svo þau geti
    framleitt meiri verðmæti og skilað þar af leiðandi meiru inn í
    ríkissjóð?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég hef ekki orðið vör við það heldur þvert á
    móti; ég hef bara orðið vör við það að hér séu hækkaðir skattar á
    fyrirtæki og fólk.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég er ekkert ein um það. Aðilarnir í
    atvinnulífinu eru þarna skýrt og klárt að tala um hversu mikil áhrif þetta
    er að hafa. Við þekkjum alveg umræðuna um sjávarútveginn en bara ýtum því
    alveg til hliðar, það mál er búið. Eigum við að tala um ferðaþjónustuna
    núna sem hefur blómstrað í kjördæmi hv. þingmanns? Hvað eru aðilar í
    ferðaþjónustu að segja núna? Eru aðilar í ferðaþjónustunni ánægðir með
    þessa ríkisstjórn og það sem hún hyggst gera? Nei, heldur betur ekki. Þeir
    hafa verulegar áhyggjur af því hvað mun gerast fyrir þær miklu
    fjárfestingar sem þeir hafa farið út í á síðustu árum vegna þess að þessi
    ríkisstjórn er að skrúfa fyrir súrefnið með aukinni skattheimtu. Það
    hlutfall sem á að taka í skattheimtu á ferðaþjónustunni er um helmingur af
    því sem þessi geiri skilaði í arðsemi á síðasta ári.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>