<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:53:04" skst="SandrS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:55:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:53:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég hjó eftir því að það voru ekki svör við þeim
    spurningum sem ég kom með hér í mínu fyrra andsvari og ég vænti þess að
    hv. þingmaður komi aðeins betur inn á það. Hvaða aðgerðir? Við erum
    auðvitað að tala um það að stærsta og mikilvægasta búbótin fyrir heimilin
    og fyrirtækin í landinu eru minni verðbólga og lægri vextir, við erum
    sammála þar. Við eigum auðvitað ekki að sætta okkur við óbreytt ástand,
    þvert á móti. Það sem er núna og liggur fyrir er að ná hallalausum
    fjárlögum því það er stöðugleikinn sem við þurfum og við þurfum þennan
    aga. Ég er alveg sammála, ég hefði alveg viljað sjá meiri afgang. Ég held
    að við getum alveg verið sammála um það og ég hlakka til að fylgjast með
    fjárlögunum í meðförum þingsins, hvernig þau taka breytingum og í hvaða
    átt. Það eru allir sammála um það að helsta aðgerð sem ríkið getur gripið
    til <!--Hún segir brugðið til / ii-->er að ná hallalausum fjárlögum og
    vera réttum megin við núllið; eins og þingmaður kom inn á áðan þá er
    uppsafnaður halli búinn að vera mikill.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla aðeins aftur að fara yfir flotta línuritið mitt sem ég er
    með hér þar sem við erum að tala um skatttekjur sem hlutfall af vergri
    landsframleiðslu, svo ég ítreki það, og við erum núna með 23,9%. Ég get
    talið upp hérna 28,2% árið 2014, 29,2% árið 2015, 27,7% árið 2016, við
    erum í 23,7% árið 2017, við erum árið 2018 í 24,2%, árið 2019 í 24,4% og
    ég ætla að sleppa Covid-árum og eldsumbrotum á Reykjanesinu. Það að þetta
    séu einhver tímamót í skattinnheimtu ríkisins er bull og þvæla. Þessar
    tölur sýna það bara. Aftur, við erum að skera niður í 2 kr. í kerfinu á
    móti 1 kr. Spurningin mín var: Meiri aðgerðir, hvaða aðgerðir? Hvernig mun
    þingmaðurinn leggja til að breytingarnar verði í meðförum
    þingsins?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>