<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:55:27" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:58:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:55:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir andsvarið og verð
    að viðurkenna að ég gleymdi að svara spurningunni um hverju ég ætti von á
    í þessum fjárlögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég skal segja það, og ég skil eiginlega ekki
    af hverju ég átti von á því og af hverju ég held það enn þá, en það er
    einhver örlítill þráður í mér sem var enn þá á þá leið: Já, Viðreisn
    kennir sig svolítið við hægri, þau hafa talað fyrir því að þau vilji ekki
    hækka skatta. Þannig að ég átti ekki von á því að hæstv. fjármálaráðherra,
    sem er varaformaður Viðreisnar, kæmi hér inn með enn annað
    fjárlagafrumvarpið með svona ofboðslegum skattahækkunum á fólk og
    fyrirtæki. Og virðulegur forseti, af því við vorum bara að fara yfir
    atvinnulífið hérna áðan, fyrst var það sjávarútvegurinn og nú er það
    ferðaþjónustan, ég veit ekki hvað verður næst, en þá er þetta líka á
    almenningi í landinu eins og við höfum talað um varðandi útreikninginn á
    tekjuskattinum eða hvað heitir þetta … <ns:frammíkall>Persónuafsláttur.
    </ns:frammíkall> — persónuafslættinum. Takk, hv. þingmaður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Við tölum hér um hallalaus fjárlög og ég stend
    auðvitað með því. Ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um mikilvægi
    þess. Ég er líka sammála hv. þingmanni þegar hún segir að það sé
    mikilvægast fyrir heimilin í landinu, og reyndar atvinnulífið, að hér
    verði lægri verðbólga og lægri vextir. En hvað hefur gerst frá því þessi
    ríkisstjórn tók við? Það hefur gerst? Vaxtalækkunarferli sem var hafið í
    tíð fyrri ríkisstjórnar, eftir öll þessi áföll sem hv. þingmaður kom inn
    á, hélt aðeins áfram en um leið og þessi ríkisstjórn sýndi á spilin, um
    leið og fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar lá fyrir, hvað gerðist þá?
    Vextir fóru að hækka aftur. Nú erum við með háa vexti og háa verðbólgu og
    það er í boði þessarar ríkisstjórnar. Þegar talað er um aðgerðirnar, hvað
    er það sem m.a. olli þessari hækkun stýrivaxta síðast og hækkun verðbólgu?
    <ns:bjalla/> Það voru aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Ég er ekki að tala um
    hækkun á olíuverði, <ns:bjalla/> ég er að tala um gjaldskrárhækkanir, ég
    er að tala um vörugjöld, ég er að tala um bifreiðagjöld. Það ber öllum
    greiningaraðilum <ns:bjalla/> saman um þetta, öllum nema hagfræðingunum í
    þessari ríkisstjórn, sem vilja loka augunum fyrir
    raunveruleikanum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>