<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:58:15" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!--i 2026-09-10 16:08:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:58:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þegar maður hélt að vont gæti ekki versnað þá
    toppar þessi ríkisstjórn sig heldur betur. Við erum að horfa upp á enn
    eitt skattahækkunarfrumvarpið, enn eitt frumvarpið þar sem jafnvel er
    gefið í og skattarnir hækkaðir meira en fyrir tæpu ári þegar þeir voru
    hækkaðir um tæpa 30 milljarða. Nú á að hækka skatta um 34 milljarða. Þetta
    er merki um algera uppgjöf í stjórn efnahagsmála, uppgjöf gagnvart
    verkefninu. Handbókin er tekin frá einhverjum sósíalískum löndum og menn
    halda að þeir geti skattað sig til velsældar og lagt þyngri byrðar á fólk
    og fyrirtæki í landinu og hlíft sjálfum sér við því að taka á eigin málum.
    Og afgangurinn? Hver er þessi stóri afgangur? Jú, hann er 4,7 milljarðar,
    það er allur afgangurinn af 1.708 milljörðum. Það þarf ekki mikið að
    gerast til þess að sá afgangur sé kominn í mínus.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Fram undan eru kjarasamningar. Ríkisstjórnin
    er greinilega alveg búin að gefa það út að hún ætli ekki að koma að þessum
    kjarasamningum með neinum hætti af því að svigrúmið sé ekki fyrir hendi í
    þessu fjárlagafrumvarpi. Það er alveg ljóst að svigrúmið er ekki fyrir
    hendi, 4,7 milljarðar. Og ferðaþjónustan er nýjasta fórnarlamb
    ríkisstjórnarinnar. Ferðamönnum hefur ekki fjölgað á Íslandi síðan 2018.
    Síðan 2017 eða 2018 hefur ferðamönnum ekki fjölgað á Íslandi. Við erum í
    gríðarlega harðri samkeppni við lönd eins og Noreg, Skotland og önnur lönd
    sem geta boðið upp á sambærilega upplifun og við og eru orðin lægri í
    verði en við. Ferðaþjónustan skapar 600 milljarða í útflutningstekjur og
    þar af skila 200 milljarðar sér í skatta og opinber gjöld. Í fyrra skilaði
    ferðaþjónustan 20 milljarða kr. hagnaði og nú á að koma til viðbótar
    skattahækkun upp á 11 milljarða. Þar af eru 5 milljarðar í óútfærðan
    ferðamannapassa og síðan eru það 4 milljarðar í hækkun á skatti á
    baðlónum, baðskattinum, sem er í hrópandi mótsögn við það sem hæstv.
    utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar sagði á kynningarfundi
    ríkisstjórnarinnar: Við munum ekki hækka virðisaukaskatt á
    ferðaþjónustuna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan er það 5,2% hækkun á gistináttagjaldi og innviðagjaldi.
    Tölum aðeins um baðlónin og um baðskatt ríkisstjórnarinnar. Í því kjördæmi
    sem ég kem frá, Norðausturkjördæmi, eru fjögur baðlón. Þetta er um 20
    milljarða kr. fjárfesting og skapar um 150 störf. Jarðböðin í Mývatnssveit
    eru opnuð núna í vor, ný jarðböð, 7 milljarða kr. fjárfesting. Það er
    verið að byggja upp Skógarböðin og stækka Skógarböðin með hóteli á
    Akureyri, 7–8 milljarðar. Forsvarsmenn bæði hjá Vök á Egilsstöðum og hjá
    Sjóböðunum á Húsavík hafa sagt að yfir háveturinn, ef þessar breytingar
    nái fram að ganga, muni böðin líklega loka. Og hverjar eru þá tekjurnar,
    hv. þingmenn, þegar böðin eru lokuð? Hverjar eru tekjurnar þá? Það er
    kannski bara af því að þetta er lúxus og þá er bara fínt að þetta sé
    lokað. Ég held að hv. þingmenn átti sig margir ekki á að í
    Norðausturkjördæmi eru 70–80% af gestum lónanna, þessara fjögurra lóna,
    Íslendingar yfir háveturinn. Og ef það þarf að minna hv. þingmenn á það þá
    er veturinn ansi langur á Íslandi. Bara í Skógarböðunum mun þessi hækkun
    þýða um 250 millj. kr. aukahækkun á Íslendinga sem nýta sér Skógarböðin.
    Og núna var verið að opna, bara fyrir nokkrum dögum, nýtt baðlón í
    Reykjadal í Hveragerði. Fyrir nokkrum mánuðum opnaði nýtt baðlón í
    Laugarási; milljarðafjárfestingar, seglar sem munu hríslast um alla
    ferðaþjónustuna og alla þjónustu í þessum byggðarlögum eins og öll önnur
    baðlón hafa gert. Þau munu draga til sín fleiri ferðamenn, búa til
    viðbótarstörf og óbein störf. En nei, þeir sem voru að fjárfesta í þessum
    lónum, t.d. því lóni sem opnaði fyrir nokkrum dögum í Hveragerði, vakna
    upp við það að það á að fara að hækka skattana. Kviss, bamm,
    búmm.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan á að hækka kílómetragjaldið. Það á að hækka kílómetragjaldið
    með þeim hætti að þetta verður enn aukið álag á bílaleigurnar. Og hverjir
    koma verst út úr því? Jú, það verða líklega ferðaþjónustuaðilarnir sem búa
    lengst frá Keflavík. 64% ferðamanna ferðast með bílaleigubílum um landið.
    Þegar bílaleigubílarnir hækka og hækka út af auknum álögum og sköttum
    ríkisstjórnarinnar munu ferðamennirnir fara færri daga og keyra skemur. Og
    hverjir fara verst út úr því? Þeir sem búa lengst frá Keflavík. Síðan eru
    það 5,2% krónutöluhækkanir. Það er alveg ótrúlegt hvernig ríkisstjórnin
    fékk út þessi 5,2%. Ekki er það verðbólgumarkmið Seðlabankans.
    Greiningaraðilar voru búnir að gera ráð fyrir 4,7–4,8% verðbólgu en
    ríkisstjórnin áttar sig greinilega á því að allar þessar skattahækkanir og
    allar þessar hækkanir munu líklega bara keyra upp verðbólguna og hún
    verður bara áfram í 5,2%. Og meðan verkalýðsforystan kallar eftir sátt og
    biður fyrirtækin og opinbera aðila um að halda aftur af sér í hækkunum og
    sveitarfélögin eru nú þegar komin af stað í að fella niður gjöld, halda
    hækkunum í hófi, vera í verðbólgumarkmiði eða jafnvel frysta hækkanir —
    nei, þá er ríkið á fullri siglingu með að hækka. Ég get alveg sagt ykkur
    það að þetta mun líklega verða til þess að aðrir munu fylgja á eftir og
    segja bara: Fyrst svona er þá skulum við bara líka hækka um 5,2%. Og
    hvernig ætlum við þá að reyna að ná niður verðbólgunni?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Tölum þá um vextina, bankaskattinn. Ég held að það sé einhver
    alger misskilningur í gangi hér á starfsemi banka. Hér kom fram áðan að
    það væri nóg til hjá bönkunum, þeir gætu bara alveg borgað. Það hefur
    verið bent á það og sýnt fram á að 6 milljarða kr. bankaskattur muni
    þrýsta á vexti í landinu. Það er nefnilega þessi ótrúlegi misskilningur,
    virðulegur forseti, að halda að ef þú rukkar fyrirtækin muni venjulegt
    fólk ekki lenda í því. En hvað gerist? Þjónustan hækkar, vörur hækka og
    fólkið í landinu og heimilin í landinu verða fyrir því. Það virðist vera
    stefna hæstv. ríkisstjórnar að öll lífsins gæði myndi skattstofn. Enginn
    er óhultur. Enginn sleppur undan skattahendi ríkisins; hún leggst eins og
    skuggi yfir allt þjóðfélagið. Það er dapurleg sýn á það hvernig við ætlum
    að byggja upp samfélag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er önnur leið. Það er önnur leið til þess
    að hægt sé að ná tökum á ríkisfjármálunum. En það er eitt sem hæstv.
    ríkisstjórn ætlar ekki að horfast í augu við og það er að draga úr
    umsvifum ríkisins, taka til heima hjá sér áður en farið er í að herða
    sultarólina á fólk og fyrirtæki í landinu. Byrjið á ykkur áður en þið
    farið að senda þessa stóru reikninga á heimilin og fyrirtækin í landinu.
    Fólk er núna meira að segja að borga hærri tekjuskatt með breytingum á
    persónuafslætti. Hærri tekjuskattur, það er búið að brjóta öll loforðin
    sem voru gefin. Hvað stendur eiginlega eftir hjá þessari ríkisstjórn? Það
    er búið að brjóta hvert einasta loforð sem venjulegu fólki, sem átti að
    hlífa, var gefið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>