<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:08:24" skst="SandrS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:10:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:08:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir sína
    framsögu hér og langar að ræða aðeins við hann. Spurningu minni er beint
    að varaformanni Sjálfstæðisflokksins. Nú er hann þriðji þingmaðurinn sem
    ég ætla að spyrja þessarar sömu spurningar og ég ætla að sjá hvort svörin
    komi fram. Hv. þingmaður talar um skattahækkunarfrumvarpið og mig langar
    að benda á að við getum ekki talað um krónur, við þurfum að tala um
    prósentur úr því að við erum að tala um heildarkökuna. Ég ætla aftur að
    fara yfir skatttekjur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og mér líður
    eins og ég sé biluð plata en þetta eru bara staðreyndir málsins. Árið
    2014, þegar Sjálfstæðisflokkurinn var í ríkisstjórn, voru skatttekjur sem
    hlutfall af vergri landsframleiðslu 28,2%, árið 2015 voru þær 29,2%, árið
    2016 voru þær 27,7% og árið 2017 — ég ætla aftur að minnast á hver var
    fjármálaráðherra þá — voru þær 23,7%. Nú erum við að tala um 23,9%. Hér
    erum við að skera niður 2 kr. á móti hverri 1 kr. Og svo að ég bæti aðeins
    við þá voru yfirhöfuð engar niðurskurðaraðgerðir í fjárlagafrumvörpum frá
    2014–2022. Það var skellt á 1–1,5% flatri aðhaldskröfu í staðinn og engar
    aðgerðir voru til að minnka umsvif ríkisins. Vissulega var eitthvað að
    frétta eftir Covid en það er samt staðreynd að þær aðhaldsaðgerðir sem nú
    eru boðaðar eiga sér ekki hliðstæðu nema í kjölfar kerfishruns árið 2009
    og svo í byrjun tíunda áratugarins. Hér erum við því að tala um að aðhald
    ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu í ár sé 0,79%, árið
    2015 var það 0,17%, árið 2016 var það 0,03%, árið 2017 var það 0,04% og
    árið 2018 var það 0,18%. Hvaða aðgerðir leggur Sjálfstæðisflokkurinn til?
    Ef við byrjum á því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>