<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:12:53" skst="SandrS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:14:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:12:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég er hundrað prósent sammála að við viljum
    stærri bita af kökunni. Mig langar að leiðrétta að það er alls ekki rétt
    og röng framsetning — það eru auðvitað erlendir ferðamenn sem greiða
    þetta, ekki fyrirtækin sjálf. Það er verið að horfa á að það séu
    ferðamennirnir sem greiði fyrir þetta. Mig langar að þakka kærlega fyrir
    þá útfærslu sem hv. þm. Jens Garðar Helgason kemur með hér, að skera niður
    um 150–170 milljarða. Ég heyri talað um niðurskurð, það er svo sem erfitt
    að útskýra hann og tilgreina. En það fyrsta sem kemur upp í huga mér er
    bara Liz Truss-leiðin og við vitum hvernig hún endaði. En mig langar bara
    aftur að minna á að við erum að skera niður 2 kr. fyrir hverja 1 kr.
    Aðhald í ríkissjóði er meira núna en hefur nokkurn tímann verið síðan
    2014. Skatttekjurnar, þær eru líka minni núna en þær hafa verið í
    stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins. Ég bara bið hv. þingmann að skoða þetta
    betur því að gögnin tala sínu máli alveg sama hvað hv. þingmaður
    segir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>