<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:16:03" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:18:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:16:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir
    ræðuna. Það hefur mikið verið talað um að stækka kökuna. Það er kaka sem
    virðist hafa stækkað endalaust í tíð síðustu ríkisstjórnar og það er þessi
    gríðarlega viðhaldsskuld sem er kannski ekki kaka, það vilja fæstir taka
    bita af henni. Viðhaldsskuldin var áætluð um 680 milljarðar í skýrslu frá
    Samtökum iðnaðarins sem var gefin út á síðasta ári, þar af 265–290
    milljarðar kr. í vegakerfið. Síðasta ríkisstjórn, þar sem í
    fjármálaráðuneytinu sat þáverandi formaður flokks hæstv. þingmanns, gerði
    ráð fyrir að 1,7% viðmið væri í fjármálastefnu þegar kæmi að hlutfalli
    gjalds af samgöngum, hvort sem útfærslan er kílómetragjald eða annað,
    miðað við verga landsframleiðslu. Hv. þm. Sandra Sigurðardóttir spurði
    áðan: Hvaða leiðir vill hv. þingmaður fara til að afla tekna til að sinna
    nauðsynlegu viðhaldi? Við getum auðvitað nefnt dæmi eins og vetrarþjónustu
    sem var verulega vanfjármögnuð en núna er búið að fullfjármagna í tíð
    þessarar ríkisstjórnar. Við getum nefnt samgönguáætlun sem var ekki lögð
    fram í tíð síðustu ríkisstjórnar, var lögð fram síðasta árið 2020, en var
    lögð fram núna og ber með sér verulega aukningu í fjárfestingu á innviðum.
    Þetta er einmitt eitt af því sem erlendir greiningaraðilar segja að sé
    lykilatriði í samkeppnishæfni Íslands. Þetta eru lykilatriði í
    verðmætasköpun, þ.e. innviðastyrking og innviðafjárfesting. Mig langar að
    vita hver afstaða hv. þingmanns er til þess að afla tekna fyrir þessa
    innviði.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>