<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:18:19" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:20:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:18:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Rögnu Sigurðardóttur fyrir
    hennar fyrri spurningu. Viðhaldsskuldin? Að sjálfsögðu kom viðhaldsskuld
    þegar ríkið horfði upp á, ekki bara hrun flugfélags heldur kom Covid og
    síðan jarðeldarnir. Auðvitað eru allir sammála um það. Ég man eftir
    umræðum hér, þá var ég ekki á þingi en ég fylgdist með umræðum, og vildu
    flokkssystkini hv. þingmanns eyða meiri peningum og lausnin við
    atvinnuleysinu var að ráða þá alla hjá ríkinu. Þá voru hvatarnir til þess
    að eyða meira og sem betur fer var ekki farið eftir því. En hv. þingmaður
    spyr hvernig á að borga innviðaskuldina. Ökutækjaeigendur í dag borga
    meira en verið er að eyða í samgöngur. Það er staðreynd. Þannig að, hv.
    þingmaður, ríkisstjórnin er að eyða peningum í eitthvað annað. Hún er að
    eyða peningum í eitthvað annað en að láta allar tekjur af samgöngum renna
    í samgöngur. Það er staðreynd. Og það er nú bara þannig, virðulegur
    forseti, að þessi ríkisstjórn verður aldrei uppiskroppa með það að eyða
    annarra manna fé. Hugmyndaflugið í þeim efnum er óendanlegt, að eyða
    annarra manna fé sem er ekki til og þarf þá að sækja í vasa
    skattgreiðenda, sækja dýpra í vasa t.d. ökutækjaeigenda. Ég vil minna hv.
    þingmann á að í síðustu fjárlögum voru vörugjöld á ökutæki hækkuð um 7,5
    milljarða, kílómetragjaldið var lagt á sem á núna að hækka um 16
    milljarða. Sjáum við þess merki í samgönguáætluninni? Nei, samgönguáætlun
    er að meðaltali um 72 milljarðar á ári.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>