<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:20:40" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:22:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:20:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hæstv. forseti. Það er nú þannig með tölur að þær geta verið
    mismunandi eftir því hver á í hlut. Ég bendi enn og aftur á að samkvæmt
    áætlunum síðustu ríkisstjórnar átti að hækka kílómetragjaldið um 7,5
    milljarða. Það var dregið niður í 4 milljarða í þessu fjárlagafrumvarpi.
    Auðvitað þurfa gjaldstofnarnir einhvers staðar að vera. Það varð hrun í
    gjaldstofnum sem ríkið stendur frammi fyrir, m.a. vegna fleiri rafbíla og
    auðvitað þarf að taka inn í þessa mynd að fellt var niður, samhliða
    upptöku kílómetragjaldsins, töluvert af gjaldliðum sem neytendur greiddu
    fyrir við dæluna. Sá kostnaður hefur lækkað verulega. Þetta er auðvitað
    bara hluti af stóra samhenginu, stóru myndinni, <ns:bjalla/> og það er
    ekki hægt að láta eins og flokkur hv. þingmanns hafi ekki verið með neinar
    áætlanir um að bæta þessa gjaldstofna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>