<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:22:07" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:23:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:22:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hv. stjórnarþingmenn — og ég þakka hv.
    þingmanni Rögnu Sigurðardóttur fyrir hennar seinna svar. Vandamálið er í
    rauninni, og það kristallast í þessum umræðum, að hér er verið að segja:
    Hvar eigum við að fá þessa peninga? Við þurfum að fá þessa peninga. Við
    erum að eyða meiru. Við þurfum að fá þessa peninga. Ríkið þarf að fá sitt,
    ríkið er að stækka og við þurfum að fá meira. Kæru landsmenn, kæru
    fyrirtæki. Hvar eru peningarnir? Við ætlum að taka meira. Það er aldrei
    horft inn á við og spurt: Gætum við kannski farið í eina góða megrun?
    Gætum við tekið á einhverju hjá okkur?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi kílómetragjaldið: Þegar það var sett á rafbíla var það
    til þess að koma rafbílum einhvern veginn inn í það að borga sinn hlut af
    samgöngukerfinu. En að bæta við 350.000 ökutækjum? Þar þurfti að ráða 30
    manns í Skattinn til að eiga við kílómetragjaldið. Harakiri-ið sem það var
    fyrir bílaleigurnar og aðra að eiga við þetta. <ns:frammíkall>Er
    enn.</ns:frammíkall> — Og er enn. Þú tókst 350.000 ökutæki <ns:bjalla/> í
    staðinn fyrir að þetta hafi bara verið á dælunni og það voru fimm
    olíufélög sem sáu um að rukka þetta fyrir ríkið. En svo kemur náttúrlega á
    daginn að þegar þú ert kominn með kílómetragjaldið þá geturðu bara
    <ns:bjalla/> hækkað það eins og þú vilt. Og núna er það 16%, á nokkrum
    mánuðum á það að hækka um 16%. <ns:frammíkall/></ns:mgr>

    <!--skv fjárlfrv á gjaldið að hækka um 15,9, er ekki búið að hækka en hann segir "á nokkrum mánuðum hefur það hækkað um 16%"-->

    <ns:mgr><ns:forseti skst="EÁs"> Forseti biður hv. þingmenn um að virða
    ræðutíma sem er ein mínúta í síðari umferð.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>