<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:23:52" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:25:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:23:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum
    ræðuna. Ég saknaði þess örlítið að hann sæi ekkert jákvætt í því núna
    þegar verið er að leggja fram fyrstu hallalausu fjárlögin frá 2019. En
    látum það vera. Mér finnst ýmis hraustleikamerki í fjárlögunum varðandi
    viðbætur í innviðafjárfestingar, heilbrigðismál og fleira. En þetta er
    auðvitað umtalsvert aðhald og það er alveg rétt. Ég get síðan alveg tengt
    við áhyggjur, ef ég skildi það rétt, af krónutöluhækkunum og öðru slíku og
    ég hef nefnt hér fyrr í umræðunni að mér finnst ekkert ólíklegt að það
    komi til tals í tengslum við kjaraviðræður og þau samtöl sem verða við
    aðila vinnumarkaðarins núna á næstu dögum og vikum. Ég upplifi hins vegar
    alls ekki að sveitarfélögin, aldrei þessu vant, séu á bremsunni heldur var
    Reykjavíkurborg þvert á móti að hækka matarskammta til gamla fólksins um
    70%, eða var það 75%, og síðast í gær boðaði borgarstjóri stórfelldar
    hækkanir á gjaldskrám í haust. Ég ætla nú bara að biðla til þingmannsins
    og spyrja, ef þetta verður að umtalsefni næstu daga og vikna, hvort hann
    treysti sér til að fullyrða það fullum fetum að flokksfélagar hans í meiri
    hlutum sem þeir eru víða — einhverjir gætu sagt því miður, en hann sem
    betur fer — muni hafa hemil á gjaldskrárhækkunum og fylgja þá á því
    fordæmi, ef fordæmi verður sett, sem verður í fjárlögum því að ég held að
    þetta sé alveg rétt, þetta getur skipt máli.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>