<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:26:03" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:28:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:26:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir
    hans fyrsta andsvar og fyrstu spurningu. Það er í rauninni verið að
    hreykja sér af því að rétt kippa fjárlögunum yfir núllið, sem er mjög
    viðkvæmt, 4,7 milljarðar. Ég veit að hv. þingmaður áttar sig á því hvað
    það er brothætt. En hverjir borga? Það er fólkið í landinu með hærri
    tekjuskatti, með því að fá minna í vasann, og fyrirtækin í landinu. Ég vil
    minna hv. þingmann á að ríkið er ekki beint að ganga fram með góðu
    fordæmi. Það eru ekki bara 5,2% hækkanir, það er verið að hækka komugjöld
    á sjúklinga um 100%. Það er dágott. Þá held ég að allir gætu bara verið
    þakklátir fyrir 5,2 þegar sums staðar er það 100%. Ég veit að hv.
    þingmaður gerir sér grein fyrir því að í flestum þeim sveitarfélögum þar
    sem Sjálfstæðisflokkurinn er við völd og sérstaklega þar sem hann er með
    hreinan meiri hluta eru gjaldskrárnar lágar og útsvarið með því lægsta. En
    ég vil samt benda á t.d. Ölfus og Reykjanesbæ, sem gekk fram núna um
    daginn og lækkaði gjöld og felldi niður gjöld, og Fjarðabyggð sem hefur
    fryst gjaldskrár og annað. Það sem ég hef áhyggjur af og ég held að hv.
    þingmaður hafi áhyggjur af líka er að ef ríkið ætlar að ganga fram með
    5,2% þá muni það á endanum þýða að aðrir fylgja á eftir. Það er líka
    svolítið skrýtið að vísa veginn en fara hann ekki sjálfur. Það er svolítið
    ríkið: Dragið þið saman og haldið aftur af ykkur, en við þurfum okkar og
    ætlum jafnvel að taka meira en við þurfum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>