<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:28:19" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:29:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:28:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar. Ég skil það
    þá þannig að þingmaðurinn og jafnvel Sjálfstæðisflokkurinn væri til í
    þennan leiðangur, að það væri lögð einhver lína, bæði fyrir ríki og
    sveitarfélög. Þá er ég líka að tala um sveitarfélag eins og Kópavog sem
    hækkaði gjöld á fjölskyldur mjög mikið á síðustu misserum og Reykjavík sem
    hækkaði gjöldin á gamla fólkið um 70% um daginn. Hugsanlega væri gott
    fyrsta skref að draga það til baka eins og hefði verið bragur á. Einhver
    sveitarfélög, já, hafa verið að lækka gjöld á verktaka og það getur verið
    ágætt. En við erum ekki síður að tala um gjöld á fjölskyldur eins og
    leikskólagjöld, frístundaheimilagjöld og annað. Ég held nefnilega að
    lykillinn að einhvers konar sátt á næstu dögum og vikum sé breið samstaða,
    líka þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fer með völdin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>