<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:29:33" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:30:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:29:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir
    hans seinni spurningu. Það er gaman að fylgjast með því hvað er að gerast
    í Reykjavík núna. Hvað er að gerast í Reykjavík? Það er verið að hagræða í
    rekstrinum, það er verið að taka á rekstrinum. Það er stefnt að því, ef ég
    hef lesið það rétt, að ná a.m.k. 900 millj. kr. hagræðingu á ári í
    rekstrinum, 900 millj. kr. og þau stefna að því að gera enn betur bara með
    því að hagræða í rekstrinum. Það hefði maður viljað sjá hjá hæstv.
    ríkisstjórn, að byrja á að horfa inn á við.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil líka benda á, af því að hv. þingmaður spyr um
    sveitarfélögin, að í Ölfusi þar sem er hreinn meiri hluti
    Sjálfstæðisflokksins með 70% fylgi eru fyrstu 36 tímarnir í leikskóla
    fríir. Ef þú nýtir fullan dag þá kostar það rúmlega 17.000 kr. á mánuði.
    Þetta heitir að reka sveitarfélag og gera það vel.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>