<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:30:50" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:41:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:30:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla að halda áfram með málefni sem hefur borið
    hér ítrekað á góma og ekki að ástæðulausu. Það er nú þannig að sjaldan er
    ein báran stök þegar kemur að aðför núverandi ríkisstjórnar að
    landsbyggðinni og atvinnulífinu, og þá ekki síst atvinnulífinu á
    landsbyggðinni. Ég held að markaðirnir hafi nú þegar svarað og lagt dóm
    sinn á það hvort þetta fjárlagafrumvarp er verðbólguhvetjandi eða ekki.
    Þeir svöruðu því í raun samdægurs. Varðandi þá umræðu sem hér hefur átt
    sér stað, um breytingu á virðisaukaskattsþrepi baðlóna, þá höfum við verið
    að sjá æ betur þá miklu segla sem þessi baðlón eru og hvatning til
    mikillar uppbyggingar með góðum áhrifum á sín nærsamfélög. Það er
    gríðarlega mikil uppbygging í gangi núna við Skógarböðin í Eyjafirði. Þar
    voru gerðar áætlanir áður en þetta fjárlagafrumvarp birtist og ég er ekki
    viss um að svo metnaðarfull áform hefðu orðið uppi ef aðilar sem þar eiga
    hlut að máli hefðu fengið að sjá inn í áætlanir þeirra sem nú fara með
    fjármál ríkisins. Jarðböðin í Mývatnssveit hafa verið nefnd, þau tóku til
    starfa ný og glæsileg nú í vor, 7 milljarða kr. framkvæmd. Gátu menn átt
    von á því að innan örfárra vikna frá þeirri opnun yrði ráðist með slíkum
    hætti að þessari starfsgrein? Það efast ég stórlega um. Böð sem hafa verið
    lengur í rekstri í núverandi mynd, eins og Sjóböðin á Húsavík eða Vök
    fyrir austan — í báðum tilfellum kemur jafnvel til álita að loka
    starfseminni hluta úr vetri. Ég velti fyrir mér hvaða tekjur ríkisstjórnin
    hyggst hafa af lokuðum jarðböðum eða lokuðum sjóböðum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er allt á sömu bókina lært, frú forseti. Einhverjar
    forsendur eru settar inn í einhver reikniforrit sem gera engan veginn ráð
    fyrir viðbrögðum markaðarins, gera ekki ráð fyrir mannlegri hegðun og gera
    heldur ekki ráð fyrir því, til að mynda í tilfelli allra þessara baða,
    sjóbaða, jarðbaða, skógarbaða og allra þessara baða, að yfir háveturinn
    eru um 70–80% gesta í Vök til að mynda, og ég hygg að það sé ekki langt
    frá því í Sjóböðunum, Íslendingar og þetta er því skattur á fólk í
    nærsamfélaginu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að gera aðeins annað að umtalsefni, ég hef ekki heyrt
    neinn nefna það. Við fengum tölvupóst, allir þingmenn Norðausturkjördæmis,
    þar sem við vorum spurð út í hvernig stæði á því að selja ætti eða
    ráðstafa með öðrum hætti flugstöðinni við flugvöllinn í Aðaldal, eða
    Húsavíkurflugvöll. Nú þegar verið er að keppast við það af samfélaginu og
    nærsamfélaginu að fara í mikla uppbyggingu við Bakka í samstarfi við
    Landsvirkjun myndi þessi aðstaða þar leika algjört lykilhlutverk. Síðan er
    skemmst frá því að segja að viðbrögðin við þessum tölvupósti af hálfu
    þingmanna meiri hlutans voru engin, þ.e. það vissi enginn af þingmönnum
    kjördæmisins, hvorki úr meiri hlutanum né minni hlutanum, af því að þetta
    stæði til. Þingmennirnir eru greinilega ekki hafðir með í ráðum þegar
    verið er að teikna þetta upp.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En af því að tíminn líður svo hratt, frú forseti, langar mig að
    fara betur inn í umræðuna um kílómetragjaldið. Það hefur aðeins borið á
    því í þessari umræðu og m.a. komið fram í máli hv. þingmanns — afsakið,
    frú forseti, nafnið datt út, ég biðst forláts á því. <ns:frammíkall/> Nei,
    það var ekki hv. þm. Sandra sem hélt því fram að það þýddi ekkert að vera
    með ... Ég þakka fyrir öll nöfnin sem dynja hér á mér. <ns:frammíkall skst="JGH">Arna Lára Jónsdóttir.) —</ns:frammíkall> Þakka þér fyrir, hv.
    þm. Jens Garðar Helgason. Hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir sagði að þetta væri
    nú samt bara ein króna. Það væri ekkert hægt að leika sér svona með
    prósentur, þetta væri í raun og veru bara ein króna. En þetta eru
    prósentur þó að þær lendi sem ein króna á lægsta flokkinn. Ef við skoðum
    til að mynda það sem mun sennilega hafa mest áhrif á landsbyggðina, sem
    eru stærri bifreiðarnar, flutningabifreiðarnar, þá eru þetta 2,22 kr. á
    10–11 tonn, 2,59 kr. á 12–13 tonn, 3,13 kr. á 14–15 tonn og svo koll af
    kolli þangað til komið er yfir 31 tonn. Þá er talan orðin 7,18 kr. Og
    vöruflutningabifreið í fullri notkun, í vöruakstri milli landshluta — það
    má varlega áætla að hún sé keyrð um 100.000 km á ári. Margar þeirra mun
    meira en það, svo að þetta er varlega áætlað til að vera með málefnalegt
    innlegg. Það þýðir 718.000 kr. á ári á þessa einu bifreið. Svo heldur
    meiri hlutinn því fram, frú forseti, að þetta hafi engin áhrif; 718.000
    kr. á eitt ökutæki á ári í vöruflutningum. Við getum velt fyrir okkur
    hvaða áhrif þetta kann að hafa til að ýta frekar undir vöruverð eins og
    kílómetragjaldið gerði strax í upphafi. Aðilar á markaði hækkuðu verð,
    þeir urðu að velta þessu út í verðlagið, þeir höfðu engan annan kost. Það
    svæði sem lengst er frá höfuðborgarsvæðinu er Norðausturland og Austurland
    ásamt Vestfjörðum — það eru gríðarlegir fiskflutningar frá þessu svæði og
    eins úr eldinu. Hvert einasta ökutæki sem fer þarna yfir 31 tonn, sem er
    reyndar frekar léttur bíll, fær 718.000 kr. aukalega á sig. Ef við förum
    hins vegar í fulllestaðan bíl með aftanívagni þá er talan mun hærri enda
    leggst gjaldið þá bæði á bílinn og aftanívagninn. Þetta er ekki rætt hér í
    salnum í dag. Nei, hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir vill frekar tala um einu
    krónuna á minnsta bílinn því að þannig lítur dæmið út fyrir að vera
    tiltölulega saklaust. Það er það ekki. Þetta er gríðarleg skattahækkun á
    atvinnulífið og fyrst og fremst á atvinnulífið úti á landi. Þess vegna hóf
    ég mál mitt á frasanum: Sjaldan er ein báran stök. Þetta er það sem
    landsbyggðin hefur mátt búa við síðan þessi ríkisstjórn tók við. Þetta er
    það hugarfar sem landsbyggðin mætir frá þessari ríkisstjórn, mér liggur
    við að segja í allflestum málum en sérstaklega í þeim málum er varða
    tekjuöflun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan hefur dálítið verið rætt um hvernig eigi að sækja allt þetta
    fé, og þannig er þetta gjald réttlætt, til frekari innviðauppbyggingar í
    samgöngumannvirkjum. Þá er rétt að minna á það að bifreiðagjaldið, sem nú
    er líka hækkað um 5,2%, kílómetragjaldið, þegar það var sett á,
    veiðigjöldin, þegar þau voru sett á, hækkunin sem er sett á núna og ég
    gæti haldið áfram — þetta er allt rökstutt með þessum sama hætti. Við
    þurfum meira fé til að byggja upp vegina. Eitt hefur þó ekkert breyst, sem
    er hlutfallið. Það skiptir með öðrum orðum ekki alveg öllu máli hvað ríkið
    er að sækja mikið fé til að byggja upp vegi því að hlutfallið breytist
    ekki neitt. Það eina sem er að breytast er að það er verið að segja við
    atvinnulífið úti á landi, við einstaklingana og fjölskyldurnar sem reka
    sína einkabíla úti á landi: Þið verðið að borga meira. Við ætlum að vísu
    ekki að láta ykkur hafa hærra hlutfall af því sem við innheimtum, þið
    verðið bara að borga meira. Það er lausn þessarar ríkisstjórnar í þessum
    málaflokki og mér virðist í flestum öðrum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég legg því til, frú forseti, eins og kom reyndar fram í máli hv.
    þm. Jens Garðars Helgasonar hér áðan, að þessi ríkisstjórn horfi inn á við
    því að á einhverjum tímapunkti er skattheimta skaðleg. Ég hygg að hækkunin
    á baðlónin muni til að mynda reynast skaðleg. Ef fulltrúar meiri hlutans
    hér inni telja ekki að á einhverjum tímapunkti, á einhverjum skurðpunkti,
    verði of mikil skattheimta skaðleg, þá er næsta og eðlilegasta spurningin
    þessi: Því hækkið þið þetta ekki um 50%, ef þetta skaðar hvort eð er ekki
    landsbyggðina, atvinnulífið úti á landi eða heimilin úti á landi? Ef mat
    ykkar er það, kæru fulltrúar meiri hlutans, að þetta sé ekki skaðlegt, af
    hverju hækkið þið þetta ekki meira? Af hverju sóttuð þið ekki meira fé? Ég
    tek svo undir það sem komið hefur fram í þessari umræðu það sem af er
    degi: Þetta kemur mér ekki á óvart af hendi Samfylkingarinnar en Viðreisn
    markaðssetti sig með talsvert öðrum hætti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>