<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:41:14" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:43:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:41:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir
    hans afbragðsgóðu ræðu. Það kom ekkert á óvart að hv. þingmaður myndi tala
    um og fara vel yfir þungaflutningana. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns af
    kostnaðinum. Það er bæði kostnaður sem leggst á fyrirtæki sem starfa úti á
    landi við að koma vörum og öðru til sín en líka kostnaður sem leggst á
    fólk og fyrirtæki með hækkun á aðföngum, með hækkun á kílómetragjaldi. Það
    er alveg ljóst, og það er greinilega alveg komið á hreint að hæstv.
    ríkisstjórn og hv. stjórnarþingmenn skilja ekki samhengi á milli þess að
    hækka gjöld og skatta á fyrirtæki og halda að það muni ekki hafa neinar
    afleiðingar fyrir neytendur í landinu eða fólk í landinu sem nýtir
    þjónustu eða kaupir vöru. Ef þú hækkar flutningskostnaðinn stórkostlega þá
    mun hækka verðið á flutningskostnaði á rúmi sem þú kaupir í IKEA eða hvað
    sem það er.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að fá kannski hv. þingmann til þess að aðeins að velta
    því fyrir sér og svara því hvaða áhrif hann telji að þetta muni hafa á
    fyrirtækin sem starfa úti á landi, þessar sífelldu hækkanir á
    flutningskostnaði, hvort sem það er þegar fyrirtækin senda frá sér vöru
    eða fá aðföng í sinn rekstur. Hvaða áhrif heldur hann að þetta muni hafa,
    m.a. í Norðausturkjördæmi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>