<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:43:20" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:45:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:43:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir
    spurningarnar. Ég hygg að áhrifin á þungaflutningana og fyrirtækin úti á
    landi sem eru háð þeim, sem og náttúrlega á alla sem búa úti á landi því
    að öll erum við háð þungaflutningum — seríóspakkinn í Nettó kemur með
    einhverjum bíl, hann fellur ekki af himnum ofan — séu nokkuð fjölbreytt
    vegna þess að sum fyrirtæki eru þó í þeirri stöðu að geta velt verðlaginu
    yfir á almenning. Það er með þessa skatta eins og allflesta ef ekki alla
    aðra að það er almenningur sem borgar þá. En það eru þó fyrirtæki sem eru
    háð þessum þungaflutningum sem geta ekki velt vöruverði sínu á almenning.
    Ég nefni sem dæmi bara eldislax, silung sem þarf að flytja á markað, þarf
    að koma ferskum í flug. Sá fiskur er í harðri samkeppni við eldislax eða
    eldissilung annars staðar frá. Til allrar lukku þá skilst mér núna að
    Nasdaq sýni að það sé hækkun á verði á eldislaxi eftir að hafa verið
    talsvert lágt í langan tíma. En það breytir ekki því að fyrirtæki sem er
    statt til að mynda austur á fjörðum og þarf að koma fiski í flug á ekki
    gott með að velta þessari hækkun út í verðlag sitt í harðri samkeppni við
    erlenda aðila á markaði. Það er eins með starfsemina í Þorlákshöfn, það er
    eins með starfsemina í Öxarfirði, það er eins með starfsemina vestur á
    fjörðum; allir þessir aðilar eru í harðri samkeppni við erlenda aðila sem
    í langflestum tilfellum eru margfalt stærri en þeir, margfalt stærri. Ekki
    geta þeir velt þessu út í verðlagið, þannig að afleiðingarnar, hv.
    þingmaður, fyrir þessi fyrirtæki geta því miður orðið mjög
    alvarlegar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>