<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:45:32" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:47:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:45:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir
    hans fyrra svar. Þá langar mig að kalla eftir hugleiðingu eða vangaveltum
    frá hv. þingmanni þegar við horfum núna upp á þetta skattafjárlagafrumvarp
    þar sem ríkið ætlar í rauninni ekkert að líta í eigin barm. Það sjá það
    allir að allar aðgerðir sem eru kynntar þarna, fækkun um 200
    ríkisstarfsmenn og eitthvað svona — þeim fjölgaði um tæplega 1.000 á 12
    mánaða tímabili núna — eru allt bara eitthvert smotterí, það er ekki verið
    að taka á einu eða neinu í rekstri ríkisins, það er ekki verið að skera
    neina fitu af. Eins og við höfum farið hér vel yfir og hv. þingmaður hefur
    farið vel yfir og eins aðrir þingmenn í stjórnarandstöðunni hafa farið vel
    yfir, þá er verið að leggja gríðarlega þungar byrðar á fólk og fyrirtæki í
    landinu ofan á þá 30 milljarða sem voru settir á fyrir nokkrum mánuðum
    síðan.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Er það ekki í rauninni orðin
    okkar eina von að þeir þingmenn sem koma úr kjördæmum þar sem eru t.d.
    sterk baðlón, þar sem er öflug ferðaþjónusta, þar sem er um langan veg að
    fara — þá horfi ég á Suður-, Norðvestur- og Norðausturkjördæmi — verðum
    við ekki bara að halda í vonina um að þessir hv. stjórnarþingmenn standi
    upp og segi: Nei, hingað og ekki lengra? Við getum ekki tekið þátt í því
    að leggja þessar álögur á fyrirtæki í okkar kjördæmum, á okkar heimabyggð,
    okkar byggðarlög og okkar fólk. Er það ekki orðin okkar eina von þegar
    kemur að þessu skattafrumvarpi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>