<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:49:52" skst="MRK" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:51:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:49:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir góða
    ræðu og fyrir góðar umræður hér í dag. Við erum að hefja leika á því að
    ræða líklega stærsta mál þessa hausts, þ.e. fjárlögin, og það skiptir
    miklu máli að við náum vel utan um þau mál. Það kostar að reka samfélag og
    það kostar enn meira að reka samfélag á yfirdrætti og hér er einfaldlega
    tilraun eða viðleitni til að snúa við viðvarandi hallarekstri síðustu
    áratuga. Það skiptir ofboðslega miklu máli að ná utan um uppsafnaðan
    halla. Við hljótum að geta verið sammála um það. Síðan er það hvernig við
    komust að þeirri niðurstöðu hvernig það er gert. Það eru ekki margar
    leiðir í leikbókinni þegar kemur að ríkisfjármálunum, það er annaðhvort að
    hagræða eða afla tekna. Hér er farin sú leið að fara í hlutfallið tveir á
    móti einum. Það er verið að hagræða um 44 milljarða og afla tekna upp á 22
    milljarða. Að tala hér um að þetta sé bara eitthvert skattahækkunar
    fjárlagafrumvarp er nú hálfómálefnalegt að mínu mati vegna þess að það er
    sannarlega verið að draga saman um 44 milljarða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér áðan var talað um samdrátt hjá Reykjavíkurborg. Hv. þm. Jens
    Garðar Helgason talaði um að Reykjavíkurborg væri að skera niður 900
    millj. kr. hér erum við að tala um 44 milljarða, ég vil halda því til
    haga. En mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í hugmyndir og fá
    umræðuna á aðeins uppbyggilegri nótur. Ef hv. þingmaður væri hér í stóli
    fjármálaráðherra og ætlaði sér að skila hallalausum fjárlögum vegna þess
    að við erum að undirbyggja stöðugleika til lengri tíma, hvað myndi hann þá
    leggja til?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>