<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:52:02" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:54:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:52:02">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir
    hennar spurningar. Áður en ég svara þér finn ég mig knúinn til að
    leiðrétta þær tölur sem hv. þingmaður er með sem býr til þennan
    einkennilega frasa, tveir á móti einum, þar sem gengið er út frá í tölunni
    22 milljarðar en samtals auknar tekjur sýnist mér vera 37,5 milljarðar.
    Þannig að þessi frasi sem á að keyra hér á í dag og er búið að gera það
    sem af er dagsins, ég fæ hann engan veginn til að ganga upp þegar ég skoða
    yfirlitið yfir hækkanirnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan kemur svona útópískari og miklu skemmtilegri spurning: Hvað
    myndi sá sem hér stendur gera ef hann væri fjármálaráðherra? Ég myndi
    byrja á því að kalla til baka þær hækkanir sem núna eru á ferðaþjónustuna
    og ökutækin því þar er löngu komið nóg. Svo myndi ég fara í það verk að
    vinda ofan af kílómetragjaldinu í heild sinni eins og það kom fram í
    desember síðastliðnum og varð að lögum eftir áramót, það myndi ég byrja á
    að gera. Svo færi ég í að skoða hvaða stofnanir eru absalút nauðsynlegar í
    þeirri mynd sem þær eru í núna. Hvaða stofnanir þola verulegan niðurskurð,
    og þá er ég að meina verulegan, ekki einhvern svona skraut niðurskurð. Svo
    færi ég í að skoða hvort það séu mögulegar stofnanir inni í kerfinu okkar
    sem við þurfum ekki að hafa. Við höfum í gegnum tíðina sameinað stofnanir
    og ætluðum að ná fram hagræðingu með því. Oft og tíðum hefur sú hagræðing
    ekki raungerst því það hafa verið sameiningar þar sem fólk hefur haldið
    störfum sínum, starfsréttindum, veikindaréttinum, námsréttindum og öðrum
    réttindum, þannig að oft hafa þetta verið svona sýndaraðgerðir. Ég held að
    þetta verði ekkert gert og sú erfiða ákvörðun bíður þess, hvort sem það er
    sá sem hér stendur eða einhver annar, að við þurfum að fara að skoða
    alvöru niðurskurð. Við getum ekki ætlað fólkinu í landinu að bæta
    endalaust á sig álögum til að standa undir óráðsíu hins opinbera.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>