<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:54:24" skst="MRK" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:56:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:54:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og mér finnst
    umræðan miklu skemmtilegri á þessu plani þar sem við erum að skiptast á
    skoðunum um það hvernig við myndum leysa þetta verkefni af því að ég held
    að við getum öll verið sammála um að það er ekki einfalt verk að reka
    ríkissjóð og ná fram langtímastöðugleika. Ef við skoðum hagsögu okkar
    Íslendinga þá höfum við samtals einhvers konar tíu ára stöðugleikatímabil
    af sirka 100. Við höfum reynt að ná utan um veruleikann með ýmsu móti en
    ég held að besta kjarabótin sem við getum sent til íslenskra heimila og
    fyrirtækja sé stöðugleiki, fyrirsjáanleiki, að draga úr vöxtum og
    verðbólgu og ná hér utan um stöðuna til lengri tíma. Varðandi hvað við
    erum að gera þá er það alveg klárlega þannig að heildarhækkun skatta, það
    er alveg rétt, er 34 milljarðar með raunhækkunum á skattstofni, t.d.
    launahækkunum og öðru, en þegar þú ert að tala um nýja gjaldtöku eru það
    22 milljarðar, tveir á móti einum, þannig að krónutöluhækkanir eru sem
    sagt ekki teknar með nýjum gjöldum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langar þá í mínu síðara andsvari aðeins að víkja aftur að
    hugmyndinni um hvar maður myndi taka peningana vegna þess að hv. þingmaður
    fór hér yfir alls konar gjöld sem hann myndi afleggja. Þá myndi koma
    reikningur hinum megin: Hvað er það nákvæmlega sem hv. þingmaður myndi
    leggja til að væri dregið úr í ríkisrekstrinum? Hvað nákvæmlega? Eru
    einhverjar stofnanir sem hægt er að sameina? Já, við erum að gera það, svo
    sannarlega. Við erum búin að vera að sameina stofnanir. Til að mynda erum
    við búin að sameina öll heilbrigðiseftirlitin, sýslumennina, það eru áform
    um lögregluembættin o.s.frv. Það er verið að hagræða. Það er verið að
    fækka stöðugildum ríkisins um 200. En þetta eru líka allt saman
    sársaukafullar aðgerðir. Þannig að spurningin er: Hvernig myndi hv.
    þingmaður hagræða?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>