<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:56:40" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 16:58:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:56:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurningarnar og
    geri nú fyrir hv. þingmann það sem hv. þingmenn, því miður, upplifa
    kannski ekki oft þegar þeir eru að spyrja hér samþingmenn sína sem hafa
    verið í stuttum ræðum og svara bara mjög skýrt og beint. Ég skal koma með
    eitt mjög gott dæmi. Við getum lagt af þessa hækkun á kílómetragjaldinu,
    sleppt þessum álögum á fólk og fyrirtæki á landsbyggðinni og tekið RÚV
    niður. Við getum rekið eina útvarpsstöð, sem má heita áfram Rás 1, eins og
    hún hét í upphafi, sinnt þar lögbundnum hlutverkum Ríkisútvarpsins með því
    að sinna menningu og mér liggur við að segja meintu öryggishlutverki því
    það eru nú aðrar leiðir í dag sem virka kannski orðið betur en útvarpið.
    Þá er ég búinn að rétta hv. þingmanni meiri pening heldur en hv. þingmaður
    hyggst sækja í þessar miklu hækkanir í kílómetragjaldinu, þannig að þetta
    er allt hægt. Það þarf hins vegar að hafa pólitískan kjark til að gera
    þetta og ég veit vel, það vita allir sem hafa setið í þessum sal síðustu
    ár og áratugi, að það að fara í þennan ræðustól hér og tala með þessum
    hætti gagnvart ríkisútvarpi allra landsmanna er ekki til vinsælda fallið
    hjá viðkomandi miðli og auðveldar þeim sem hér stendur ekki að standa í
    pólitík. Þess vegna held ég að í gegnum tíðina hafi þessi sæti hér heilt
    yfir meira og minna verið skipuð fólki sem hefur ekki lagt í þennan slag.
    Svona slagir eru hins vegar margir í boði inni í kerfinu. Ég nefni sem
    dæmi stofnun Mannréttindastofnunar Íslands, úttekt á henni; hvað fer mikið
    í hana, hverju nákvæmlega hún skilar, hvað af því er lögbundið o.s.frv.
    Svona gæti ég rakið mig í gegnum alla keðjuna og treysti mér til að finna
    nógu marga milljarða til að láta þessar skattahækkanir sem hér eru boðaðar
    allar falla niður.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>