<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T16:58:52" skst="HildS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:09:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T16:58:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við stöndum hér að ræða fjárlög fyrir árið 2027,
    vegferð sem byrjaði í vikunni á því að forláta núll var tússað af mikilli
    fagmennsku á töflu á enn einum blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar.
    Ríkisstjórnin, eins og við vitum, leggur talsvert mikið upp úr
    blaðamannafundum sínum og orðaleikjum, frösum og öllu því sem hægt er að
    tína undir hatt ásýndarstjórnmála og er því miður að mínu viti farið að
    taka of mikið pláss í þeim mikilvægu verkefnum sem við störfum við hér.
    Sælla minninga, fyrir ári síðan, var ekki tússað neitt á neinar töflur en
    þá átti að boða hér verðmætasköpunarhaust sem fór nú lítið fyrir en við
    fundum meira fyrir verðbólgu- og vaxtavetri. Ásýndarstjórnmálin skila
    sínum árangri oft, þau geta verið sniðug og það getur alveg verið gaman að
    því, frú forseti, kannski óþarfi að vera of leiðinlegur hérna, en
    vandamálið við ásýndarstjórnmál er að á einhverjum tímapunkti missir þú
    traustið, ef allt það sem þú ert að gera er of oft smættað niður í frasa
    og einhvers konar leikþætti sem fólk smám saman missir traustið
    á.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Og af hverju er ég að ræða þetta hér? Að mínu viti, frú forseti,
    er það eina sem skiptir máli varðandi það efnahagsástand sem við búum við
    núna, að það ríki traust til ríkisstjórnarinnar um hennar vegferð og
    hvernig hún ætlar að halda á hinu, jú, víðfræga plani, sem við höfum ekki
    séð neinn árangur af hingað til. Það er nefnilega þannig, frú forseti,
    sama þó að þú stillir öllu upp með miklu glimmeri og fallegum frösum; ef
    fólk trúir því ekki að það sem að er stefnt eða alla vega það sem er sett
    í þennan góða búning muni ekki raungerast, þá í þessu tilfelli mun það
    ólíklega raungerast. Það er þannig með þau fjárlög sem við erum að ræða
    núna að markaðurinn, hinn hlutlausi markaður, sem á allt undir því að
    reyna að lesa rétt í stöðuna og er ekki með neinar aðrar skoðanir í málinu
    heldur en beinharða fjárhagslega hagsmuni og er að lesa í framtíðina, tók
    þetta plagg og sagði: Nei, þetta mun auka verðbólgu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er áhyggjuefni, frú forseti, því þó að það sé góðra gjalda
    vert að ætla að skila hallalausum fjárlögum, þá er hér undir miklu stærri
    mynd. Hér er undir það risastóra hagsmunamál allra heimila og allra
    fyrirtækja í landinu að ná niður verðbólgu og ná niður vöxtum. Það er
    stóra málið. Og vissulega geta hallalaus fjárlög í réttum aðstæðum
    aðstoðað við það. En ef sama plagg er metið svo af hlutlausum aðilum að
    það muni auka verðbólgu, að hverju er þá nákvæmlega stefnt hér, frú
    forseti? Mér finnst það ekki alveg skýrt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er frægt að fyrir kosningar, því miður, sögðu forsvarsmenn
    ríkisstjórnarinnar mjög skýrt, eins skýrt og hægt er: Við munum ekki hækka
    skatta. Við munum ekki hækka skatta á vinnandi fólk, venjulegt fólk, lítil
    og meðalstór fyrirtæki. Við munum ekki hækka skatta. Hæstv.
    forsætisráðherra var tíðrætt í stefnuræðu sinni hér í gærkvöldi að þessi
    ríkisstjórn hefði gefið loforð og efnt loforð, loforð gefin, loforð efnd,
    eins og hún orðaði það. Ja, en þau hafa svikið þetta loforð, þetta mjög
    skýra loforð sem var gefið fyrir kosningar um að hækka ekki skatta var
    svikið um leið og þau settust í þessa stóla og þau eru enn að svíkja það.
    Og þá ríkir ekki traust til ríkisstjórnarinnar. Markaðurinn treystir ekki
    þeim fjárlögum sem er búið að leggja fram. 85% aðspurðra treysta
    ríkisstjórninni ekki fyrir að halda á verkefni efnahagsmála.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég heyri hér í umræðunni í dag, frú forseti, að hv. stjórnarliðar
    fara mikinn um að hér sé verið að skila hallaleysi í fyrsta sinn í áratug.
    Mér finnst það nú kannski ívið mikið í lagt með orðinu áratug, svo það sé
    sagt. Ríkissjóður var reyndar hallalaus árin 2016, 2017, 2018 og ég vil
    taka fram, frú forseti, að það var ekki áætlun um hallaleysi. Þetta var
    hallaleysi. Ríkissjóður var hallalaus 2016, 2017, 2018. Og svo kemur
    vissulega 2019. Hvað gerðist 2019? Man það einhver? Jú, eitt stykki
    risastórt flugfélag með öllum sínum afleiddu áhrifum hvarf, fór. Það var
    auðvitað áfall sem þurfti að bregðast við, risastórt áfall. En hvað
    gerðist svo árið á eftir? Man það einhver? Jú, heimsfaraldur Covid, enn þá
    stærra áfall. Og svo árið eftir kom enn þá stærra áfall og svo enn þá
    stærra áfall. Og ég er að nefna þetta hér því mér finnst með ólíkindum að
    heyra háttvirta stjórnarliða ræða um, jú, vissulega uppsafnaðan halla eins
    og hér hafi ríkisstjórnin verið bara einhvern veginn að búa til einhverjar
    glimmerskreyttar, demantsskreyttar jólaskreytingar eða eitthvað.
    Ríkisstjórnin var að bregðast við áföllum sem enginn gat séð fyrir. En
    ríkisstjórnin sem þá var, var komin á rétta leið, var búin að rétta af
    kúrsinn. Vextir voru að lækka, verðbólga var á niðurleið þangað til að ný
    ríkisstjórn, núverandi hæstv. ríkisstjórn, tók við stjórnartaumunum og
    breytti um kúrs í vonda átt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil bara taka þetta fram í samhengi hlutanna hérna, frú
    forseti, því það er ekki maklegt hvernig er leyft sér að tala um að þessi
    halli síðastliðin tíu ár, sem er í fyrsta lagi bara ekki rétt, hafi komið
    fram af engu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En nú á að ná fram hallaleysi, sem er gott og vel, en það á að
    gera það svolítið á hnefanum — hvað sem það kostar. Og hverjir eiga að
    finna fyrir þeim hnefa? Ferðaþjónustan. Ferðaþjónustan sem hélt í sér lífi
    í gegnum heimsfaraldur og alls konar krísur, búin að standa sig vel, er
    með mikla fjárfestingu, fjölda starfa. Hún er núna svartipétur í augum
    ríkisstjórnarinnar þar sem má sækja meira fé. Bankaskatturinn. Nóg til,
    segja hv. stjórnarliðar, nóg til, í engu samhengi við samkeppnishæfni eða
    afleidd áhrif af bankaskatti. Hvað gerir bankaskattur? Hver borgar hann að
    lokum? Auðvitað venjulegt fólk. Fyrir utan að þrýsta upp vöxtum sem ég
    hélt að væri svo gott sem óumdeilt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við ætlum ekki að hækka skatta á venjulegt fólk. Hver einasti
    launamaður í landinu mun borga hærri skatt vegna breytinga á
    persónuafslætti. Hver einasti launamaður í landinu í öllum skattþrepum,
    líka hinu lægsta. Allir launamenn á landinu munu borga hærri skatt.
    Krónutölugjöldin: 5,2%, meira en tvöfalt meira en verðbólgumarkmið
    Seðlabankans. Ég heyri alveg sjónarmið hæstv. ráðherra um að ef þessi
    krónutölugjöld eiga að gera það sem þau eiga að gera þá megi þau ekki
    rýrna. Nei, en hvaða skilaboð eru þetta til sveitarfélaganna? Hvaða
    skilaboð eru þetta inn í kjaraviðræður í ofboðslega viðkvæmu umhverfi?
    Ætlar ríkið að segja: Nei, við þurfum að passa upp á okkar tekjustofna,
    algjörlega burt séð frá afleiddum áhrifum þeirra skilaboða í þessu
    viðkvæma umhverfi — sem snýst um hvað, frú forseti? Jú, samhengi hlutanna.
    Og það er góðra gjalda vert að ætla að skrifa núll á einhverja töflu og ná
    fram hallalausum fjárlögum. Já, já, í réttum aðstæðum gæti það verið fínt
    en ekki sama hvað það kostar, ekki sama hvaða afleiðingar það
    hefur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við ætlum ekki að hækka skatta, frú forseti, sögðu þau.
    <ns:bjalla/> Ég segi: Loforð gefin, loforð svikin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>