<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:09:26" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:11:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:09:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hreinskilna ræðu.
    Það er greinilegt að hv. þingmaður, talsmaður Sjálfstæðisflokksins hér,
    telur að það sé ófært að skila hallalausum fjárlögum og að þetta frumvarp
    sé einhvers konar vandræðabarn. Þessi hallaleysisviðkvæmni sem er komin
    hér fram — ég tel að hv. þingmenn ættu að endurskoða afstöðu sína til
    hennar því að við höfum hér að flestu leyti mjög góðar ytri aðstæður og
    það væri þarft að fá hér eitthvað betra, hvað á að segja, púkk í umræðuna.
    Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðað niðurskurð, það væri á ríkisútgjöldum,
    það væri t.d. gott að fá hér hvaða útgjöld menn vilja skera niður á þeim
    bænum, eru það framlög til hjúkrunarheimila, framlög til ellilífeyris? Það
    kom fram hér fyrr á árinu að menn teldu að það væri of vel í lagt með þá
    hækkun sem er boðuð nú í þessu fjárlagafrumvarpi, það væri bara mjög
    þarft. Ég hef t.d. bent á fyrr í umræðunni að það væri hægt að nýta þær
    aflaheimildir betur sem eru gefnar út, m.a. helmingurinn af öllum ufsaafla
    er ekki veiddur. En viðkvæmnin fyrir þessu markmiði, mér finnst hún
    sérstök í ljósi þess að það eru að mörgu leyti mjög góðar aðstæður. Við
    erum að fá góð verð fyrir útflutningsafurðirnar okkar, hvort sem það er úr
    fiskinum eða stóriðjunni, aukið eldi, þannig að það er bara margt hagfellt
    og til að glíma við þau áföll sem hún nefndi í ræðu sinni væri óráð að
    halda áfram að vera með halla á ríkissjóði. Við eigum að sameinast um það
    markmið að ná endum saman.</ns:mgr>

    <!--***Viðkvæmni fyrir hallaleysi? Þetta er heldur óþjált-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>