<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:11:52" skst="HildS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:14:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:11:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir
    andsvarið. Mér þykir áhugavert að heyra hv. stjórnarliða nálgast þessa
    umræðu á þann veg að annaðhvort þurfi að hækka skatta eða skera niður og
    þá hvar. Það er líka til önnur leið sem gengur stundum undir heitinu að
    stækka kökuna. Ríkisstjórnin sem var á árunum 2013–2023, um það tíu ára
    skeið, lækkaði t.d. skatta, lækkaði skatta um rúmlega 300 milljarða fyrir
    fólkið í landinu, 300 milljarðar sem fólkið í landinu gat setið eftir með
    af fjármagni í sínum vösum. Minnkaði þetta tekjur ríkissjóðs? Nei, það
    gerði það nefnilega ekki. Þetta er hugmyndafræði hægrisins gagnvart því
    hvernig er hægt að reka ríkið sem best; að gefa fólki sem mest frelsi til
    þess að fá hugmyndir, vera duglegt og skapa störf, gera allt þetta. Öll
    þessi afleiddu áhrif stækka kökuna þannig að við getum t.d. sett meira í
    velferðarkerfið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er ein hugmyndafræði sem mér finnst skrýtið að heyra af,
    sérstaklega þar sem Viðreisn er nú einn flokkanna í þessari ríkisstjórn,
    að það er einhvern veginn annaðhvort að hækka skatta eða skera niður.
    Þetta er miklu stærri mynd en svo að það sé hægt að smætta hana niður í
    eitthvað svona einfalt. En til að svara spurningunni beint þá hvet ég hann
    til að skoða efnahagstillögur okkar Sjálfstæðismanna þar sem t.d. kemur
    fram að það sé hægt að selja banka, greiða niður skuldir, spara
    vaxtagjöld, sameina stofnanir, selja nokkrar þeirra, ég nefni t.d.
    Póstinn, ég nefni ÁTVR, ég nefni ýmislegt. Ríkið má horfa aðeins meira inn
    á við, hvar er hægt að gera betur, nýta meiri gervigreind o.s.frv. Það er
    margt hægt að gera. En svar þessarar ríkisstjórnar er: Hvar er borð fyrir
    báru einhvers staðar úti í atvinnulífinu þar sem hægt er að rukka örlítið
    meira áður en við byrjum á því?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>