<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:14:14" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:16:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:14:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir svarið en
    bendi henni á að það frumvarp sem hér er til umræðu kemur hvort tveggja
    með tillögur um að spara, það er fækkun ríkisstarfsmanna um 1% og það ætti
    að vera kostur á því því að það kom fram að á síðasta áratug hefur þeim
    fjölgað um 25%, ef mark má taka af tölum frá Byggðastofnun, og mest þá á
    því tímabili þar sem Sjálfstæðisflokkurinn réði ferðinni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En af því að verið er að ræða um að stækka kökur þá vil ég einnig
    benda á að ef einhver þingmaður hefur einmitt bent á það hvernig við megum
    stækka kökuna þá er það sá sem hér stendur. Ég nefndi ufsa, þetta eru
    veiðiheimildir sem hafa verið gefnar út en hafa ekki verið nýttar. Mér
    finnst það vera mjög sérstakt og það væri mjög gott ef hv. þingmenn
    Sjálfstæðisflokksins, sem eru talsmenn þess að nýta hlutina, kæmu með mér
    í umræðuna um að gera betur hvað það varðar. Mér finnst það blasa við að
    þarna getum við gert betur. Þarna getum við sameinast og ég hlakka til
    þeirrar vinnu sem mun fara fram í fjárlaganefnd um það að fara yfir
    tillögur, hvar við getum gert betur og mögulega taka tillit til þeirra
    sjónarmiða sem þar sem koma fram mögulega málefnalegar ábendingar um að
    það sé verið að taka of mikið af einhverjum liðum. Það er rétt að fara
    yfir hlutina og ég skora á hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins að gera slíkt
    hið sama, fara einmitt yfir svona hluti þar sem menn eru ekki að nýta þær
    heimildir svo árum skipti, t.d. í ufsanum, heldur að láta hann liggja
    óveiddan í sjónum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>