<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:16:30" skst="HildS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:18:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:16:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir hans
    seinna andsvar. Mig langar að byrja á því sem hann endaði á varðandi vinnu
    fjárlaganefndar. Ég ætla að leyfa mér að taka undir og það gleður mig að
    heyra alla vega þann tón, svo ég sé nú kannski ekki að hafa rangt eftir,
    um að nefndarmenn líti svo á að þeir muni leggjast yfir þetta plagg, þetta
    frumvarp, því að við skulum þrátt fyrir allt ekki gleyma því, ekki það að
    ég veit að ég hafi staðið nokkrum sinnum í þessari pontu undanfarin tæp
    tvö ár og kannski reynt að minna á það, að það er þingið sem á lokaorðið
    um það sem kemur frá ríkisstjórninni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tek undir með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að
    fjárlaganefndarvinna og þeir þingmenn sem þar sitja, sem fá allar
    umsagnirnar, athugasemdirnar, gestakomurnar beint í æð og fá oft meiri
    heildarsýn á verkefni heldur en kannski kemur frá ráðuneytinu, með fullri
    virðingu fyrir ráðuneytinu og ég efast ekki um að þar séu allir að gera
    sitt besta — við erum ekki bara tvívíð hérna í þinginu og ég bara fagna
    því. Ég fæ þó að enda á því sem ég byrjaði mína ræðu á: Það getur verið
    aldeilis góðra gjalda vert og alveg hægt að hrósa fyrir það eitt og sér að
    stefna að 0 kr. í halla en það verður að vera í einhverju samhengi
    hlutanna. Ef ég skil hv. þingmann rétt lítur hann svo á að það sé hans
    verkefni og þeirra í hv. fjárlaganefnd að rýna þetta með það
    heildarsamhengi í huga hvað raunverulega skiptir fólkið í landinu máli,
    hvað það er raunverulega sem skiptir mestu máli að verði niðurstaðan úr
    þessari vinnu, og ég bara fagna því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>