<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:18:48" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:20:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:18:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Nú eru nokkrir dagar búnir á þinginu og við erum að
    ræða eitt stærsta mál ríkisstjórnarinnar og maður skyldi ætla að hún væri
    stolt af því sem hún er að leggja fram. Engu að síður er ég búin að sitja
    hér í salnum og bíða ansi lengi eftir einhverjum stjórnarliða svo að ég
    geti spurt viðkomandi út í fjárlögin, einhvern sem styður þau. Ég veit
    vissulega að hér áðan voru einhverjir — ráðherra virðist farinn í felur,
    hann er hættur að vera í andsvörum, þannig að ég verð að fá að beina
    spurningu til hv. þm. Hildar Sverrisdóttur sem hélt prýðisræðu. Ég tel að
    mögulega gæti hún hjálpað mér að ná utan um þessa leikjafræði sem mér
    sýnist vera í gangi um hallalaus fjárlög. Nú liggur það fyrir að árið
    2026, þetta ár, voru fjárlög vegna þess með útgjaldaaukningu, meiri
    útgjöldum en nokkur önnur ríkisstjórn hafði boðað. Núna vitum við að það
    stefnir í að það verði yfir 30 milljarðar í viðbót á útgjöldum. Það er því
    eiginlega alveg útilokað að það verði hallalaus fjárlög. Við vitum líka að
    hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn Flokks fólksins hafa boðað hér jólabónus
    aftur. Hann er ekki inni í þessum fjárlögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þannig að spurning mín er þessi: Er eitthvað að marka þessa áætlun
    eða er þetta bara blek á blaði til að geta sagst hafa lagt fram hallalaus
    fjárlög? Ég hjó eftir því, sem hv. þingmaður fór yfir hér áðan, að í
    ríkisstjórnartíð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar
    voru hallalaus fjárlög. Er eitthvað að marka þetta, að mati hv.
    þingmanns?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>