<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:21:00" skst="HildS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:23:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:21:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir
    andsvarið. Það er kannski ekki rétt að spyrja mig út í leikjafræði hæstv.
    ríkisstjórnar. Ég verð þó að viðurkenna að ég skil það orðaval hjá hv.
    þingmanni. Það er einhvers konar ára, alla vega yfir þessari nálgun, alla
    vega af hálfu margra í hæstv. ríkisstjórn og stjórnarmeirihlutanum, að það
    eigi að ná þessu fram svolítið á hnefanum, alla vega að ná fram
    skynjuninni um að þetta sé einhvern veginn stóra breytan í því mikilvæga
    verkefni sem allir eru sammála um að skipti mestu máli, sem er að ná niður
    verðbólgu og þar með vöxtum, algerlega burt séð frá því að hægt sé að færa
    mjög sannfærandi rök fyrir því að þessi fjárlög muni gera þveröfugt. Það
    er verið að senda skilaboð til sveitarfélaga og inn í kjaraviðræður. Það
    er verið að gera það. Markaðurinn sjálfur, hinn hlutlausi markaður, sem er
    enginn álitsgjafi, er í engri pólitík, er ekki fenginn inn í eitt né
    neitt, tvist eða bast, til að segja eitt né neitt heldur bara horfir á og
    spyr: Hvar er sniðugast fyrir mig að setja peningana mína? — þeir aðilar
    hafa sagt: Þetta mun ekki ganga upp, þetta mun auka verðbólgu,
    verðbólguálag hefur hækkað. Þannig að ég veit ekki betur en að þessir 5
    milljarðar sem áttu að vera það sem skar þarna á milli, ég veit ekki betur
    en að þeir séu farnir hvort eð er. Það er einhver auðmýkt sem er ekki að
    finna í nálguninni á þessu máli og ég verð því miður að svara hv.
    þingmanni þannig að ég skil ekki þá leikjafræði.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>