<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:23:21" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:25:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:23:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þessir 4,7 milljarðar
    sem eiga að vera í afgang — sem væri nú gott ef myndi rætast — eru samt
    0,003% af útgjöldum ríkissjóðs svo að það má ekkert út af bregða til að
    þetta geti staðist. Mig langaði líka að vekja athygli á einu, því að
    fjárlög snúast um forgangsröðun og ég var ánægð með þá forgangsröðun að
    byggja upp hjúkrunarheimili. En af því að hv. þingmaður minntist á
    leikjafræði þessarar ríkisstjórnar þá olli það mér vonbrigðum að það sé
    ekki bara hægt að segja hlutina eins og þeir eru. Hæstv. ráðherra, Inga
    Sæland, hefur komið núna ítrekað í fjölmiðla og sagt að það verði engir
    biðlistar samkvæmt þeirra áætlun, í lok framkvæmdaáætlunar þessarar
    ríkisstjórnar. Ef þú skoðar þessa áætlun kemur fram smátt letur, þ.e. smáa
    letrið sem ríkisstjórnin segir ekki frá, þ.e. það verður enginn á biðlista
    miðað við markmið ríkisstjórnarinnar árið 2028. Markmið ríkisstjórnarinnar
    er að 75% aðila séu ekki á biðlista. Þessi framsetning, að segja að enginn
    verði á biðlista og sleppa því að segja að það verði enginn á biðlista
    miðað við markmið um að 75% komist að, finnst mér óboðleg. Er það kannski
    vandamálið, að þau eru hætt að hugsa í raunheimum og eru bara í
    leikjafræði?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>