<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:25:28" skst="HildS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:27:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:25:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar seinna andsvar.
    Því miður held ég að hægt sé að fullyrða að engin ríkisstjórn á Íslandi
    hafi viðhaft viðlíka ásýndarstjórnmálaáherslu eins og núverandi hæstv.
    ríkisstjórn. Ég ætla að leyfa mér að segja, því miður — þó að ég skilji að
    við erum öll í pólitík og það er alveg sjálfsagt og oft gaman að því að
    vera sniðugur og skemmtilegur jafnvel — en þegar ásýndin er farin að
    snúast kannski fullmikið um ja, eiginlega hreinar og klárar blekkingar, þá
    kannski kárnar gamanið. Það er auðvitað ekkert í lagi og ég þarf ekkert að
    rekja þessi dæmi sem hv. þingmaður gerði varðandi biðlistana. Ég tek undir
    að hér er ekki verið að segja alveg satt. Er hægt að segja að hér sé verið
    að ljúga? Ég kannski treysti mér ekki til þess. En er verið að segja alveg
    satt? Nei, það er ekkert verið að segja alveg satt. Við sáum þetta í
    upphafi kjörtímabils varðandi hjúkrunarrýmin, þar sem var komið og klippt
    á borða. Það er ekki mjög erfitt að klippa á borða. Það tekur um hálftíma
    og það eina sem þarf eru ein skæri og góðir skór. Maður myndi einhvern
    veginn halda að það yrði tekið fram heiðarlega að að sjálfsögðu hefði
    þetta miklu lengri aðdraganda en bara þessar nokkrar vikur sem núverandi
    ríkisstjórn hefði verið við völd. En nei, það var bara vídeó eftir vídeó:
    Það skiptir máli hver stjórnar. Við látum verkin tala. Það hefur ekkert
    gerst í mörg ár en núna er allt að gerast.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En ég ætla að leyfa mér að svara, hv. þingmaður, ég ætla að leyfa
    mér að segja: Allt viti borið fólk sér í gegnum svona málflutning,
    <ns:bjalla/> allt viti borið fólk sér í gegnum svona. Ég hvet hæstv.
    ríkisstjórn til að láta af þessum leikaraskap.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>