<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:27:57" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:38:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:27:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég held að það sé orðið ljóst að ég er ekki hrifin af
    verkum þessarar ríkisstjórnar og það er óhætt að segja að það sé komin
    mynd á það hvernig þessi ríkisstjórn starfar. Núna erum við að ræða þriðja
    fjárlagafrumvarp þessarar ríkisstjórnar. Það fyrsta fengu þau í arf frá
    fyrri ríkisstjórn. Vissulega var það ekki ríkisstjórn sem ég var ánægð með
    hversu mikið jók útgjöld en eins og þau hafa sjálf bent á var stór hluti
    þess kannski ástæður sem kröfðust þess að auka útgjöld. Svo er hægt að
    deila um hvort það hefði mátt stoppa fyrr. Þessi ríkisstjórn er ekki að
    eiga við það sama. Það fjárlagafrumvarp sem hún fékk í arf taldi hún alla
    vega nógu gott til að breyta engu. En hvað gerðist? Hvað kom í ljós? Hvað
    kom á daginn? Jú, eftir árið jók þessi ríkisstjórn útgjöldin um 45
    milljarða frá frumvarpi fyrri ríkisstjórnar, þ.e. árið 2025, fyrsta heila
    ár þessarar ríkisstjórnar, vann hún eftir fjárlagafrumvarpi fyrri
    ríkisstjórnar nema hún bætti um betur, um 45 milljarða. Þetta er sama
    ríkisstjórn og segist vera að taka til, segist vera að gera hlutina
    öðruvísi, en orð og efndir fara ekki saman. Og hvað kom næst? 2026 voru
    fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar sem hún samdi sjálf og þá fengum við að
    sjá mestu útgjaldaaukningu sem nokkur ríkisstjórn hefur boðað fyrr og
    síðar. Útgjöldin jukust um 143 milljarða. Og hvað sjáum við fram á núna?
    Það dugði ekki til. Það dugði þessari ríkisstjórn ekki því að nýjustu
    fréttir benda til þess að útgjöldin muni aukast um rúmlega 30 milljarða
    til viðbótar, þannig að hallinn sem átti að vera 28 milljarðar verður yfir
    60 milljörðum miðað við áætlanir. Þetta er ríkisstjórn sem segist vera að
    taka á málum, segist vera að borga niður skuldir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvað er sagt og hvað er satt? Það sem er satt er að skuldir
    munu aukast á næsta ári. Hæstv. fjármálaráðherra kom hér áðan í andsvar og
    fór yfir að það væru ástæður fyrir þessu öllu og auðvitað að hans mati
    ekki ástæður sem ríkisstjórnin réði við. Þau væru bara að borga meira út
    af hærri verðbólgu. En af hverju erum við hér í hærri verðbólgu? Jú, vegna
    þess að þetta er ríkisstjórn sem gat ekki hamið sig í útgjaldaaukningu og
    hækkaði krónutöluskatta umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Það var það
    sem gerðist í fyrra og það var það sem allir greiningaraðilar og allir
    aðrir bentu á og sýndu fram á með gögnum að fór beint í að auka
    verðbólguna. Engu að síður virðast hagfræðingarnir tveir í ríkisstjórninni
    vera einu hagfræðingar landsins sem segja að þetta hafi ekki haft nein
    áhrif á verðbólguna, bara utanaðkomandi þættir. Þetta er allt saman
    einhvers konar, ég veit það ekki, en eins og ég segi: Það er eiginlega
    sama hvað er sagt, það er ekkert að marka það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við sjáum það líka með allar skattahækkanirnar. Það er talað um
    leiðréttingar, alls konar — ég man ekki öll þessi nýyrði en þau nota ekki
    orðið skattahækkanir, eins og þá sé skárra að svíkja loforðin um að hækka
    ekki skatta á venjulegt fólk. Það eru loforð sem var löngu búið að svíkja
    og núna erum við komin inn á þriðju fjárlögin, og hvað gera þau? Þau koma
    hér í fréttir og segja að þau séu að taka til og draga úr útgjöldum á
    meðan staðreyndin er sú að í þessu fjárlagafrumvarpi sem við ræðum eru þau
    að auka útgjöld um 80 milljarða. Að teknu tilliti til verðlags eru þau
    samt að auka útgjöld um 20 milljarða. Ríkisstjórnin sem mætti hér með
    einhverja skrautsýningu og teiknaði stórt núll á blað til að ná
    hallalausum fjárlögum gat ekki stillt sig um þessa útgjaldaaukningu og
    fyrir vikið er hún að hækka skatta verulega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þau segjast vera að draga úr, og nú skulum við aðeins fara aftur
    yfir hvað er sagt og hvað er satt, og að þetta séu aðhaldssöm fjárlög.
    Hvað meina þau með því? Aðhald frá fyrri áætlunum? Þetta er augljóslega
    ekki aðhald í útgjöldum því að þau eru að aukast. Er þetta aðhald frá
    þeirra eigin áætlunum eða er þetta minni aukning? Er þetta allt í
    hlutfalli af vergri landsframleiðslu og er þá eðlilegt að Covid-árin hafi
    verið einhvers konar nýtt gólf? Er þetta ekki einmitt tækifæri fyrir þessa
    ríkisstjórn til að draga verulega úr útgjöldum eftir svona hremmingar eins
    og við höfum gengið í gegnum á síðastliðnum árum? Svo er talað um að þetta
    aðhald sé 44 milljarðar. Við skulum átta okkur á því að þetta heitir
    forgangsröðun. Þetta heitir ekki aðhald. Þau eru að bæta í sums staðar og
    mögulega draga úr annars staðar en lokaniðurstaðan er aukin ríkisútgjöld,
    þannig að þetta aðhald er bara þeirra forgangsröðun. Forgangsröðunin er
    meira og minna bókhaldslegs eðlis. Nýi Landspítalinn, þar sem er sagt að
    eigi að draga niður hluta af þessum 44 milljörðum, er 8 milljarðar. En ef
    maður rýnir þetta betur, hvað kemur þá í ljós? Þetta er í raun og veru
    bara út af ónýttum fjárheimildum fyrri ára og þannig eru fleiri dæmi.
    Þetta eru frestanir á verkefnum sem eru ekki tilbúin, þetta eru ónýttar
    heimildir. Þetta eru ekki erfiðar ákvarðanir en svo koma þau hér og berja
    sér á brjóst og segjast vera að taka svo erfiðar ákvarðanir. Hvar eru
    erfiðu ákvarðanirnar? Þær er ekki hér að finna. Hvar er verið að rýna í
    hvað megi betur fara? Hvar eru allar aðhaldstillögurnar? Nei, þær eru ofan
    í skúffu af því að þær eru erfiðar. Hér er ekki verið að taka erfiðar
    ákvarðanir. Hér er verið að auka ríkisútgjöld en sagt að það sé verið að
    draga úr.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það skondna er að þau vilja tala um prósentur en þau vilja ekki
    tala um prósentur þegar við erum að hækka kílómetraskattana um 15,9%. Þá
    vilja þau tala um að þetta sé bara rúmlega 1 kr. á kílómetra. Já, en það
    er nú bara þannig að miðað við meðalbifreiðanotkun eru þetta yfir 15.000
    kr. á ári. Komugjöld; ég get alveg borgað aukalega komugjöld en fyrir þá
    sem mæta tvisvar til þrisvar, eldri borgara sem hafa borgað hér skatta
    allt sitt líf, eru þetta kannski 12.000–15.000 kr. á mánuði, bara þessi
    hækkun. Þegar hv. þingmenn koma hér og segja að það sé verið að spara 2
    kr., eyða 1 kr. og spara 2 kr., ég man ekki alveg hvernig frasinn var, þá
    er það auðvitað ekki rétt vegna þess að eins og ég fór yfir eru
    aðhaldsaðgerðirnar, þessir 44 milljarðar, að hluta til bókhaldslegs eðlis.
    Þetta er bara forgangsröðun af því að endaniðurstaðan er meiri útgjöld en
    í fyrra. Það er ekki verið að spara miðað við í fyrra og auknir skattar á
    heimili landsins eru ekki 22 milljarðar. Í þessu fjárlagafrumvarpi eru
    þeir 37,5 milljarðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Tíminn er á þrotum og ég ætlaði að fara yfir hverja skattahækkun
    sem ég næ ekki en ég hvet fólk til að kynna sér raunverulega hvað er verið
    að leggja fram í þessum 37,5 milljörðum sem bitna á heimilum landsins. Því
    miður sjáum við líka að það er verið að lofa alls konar hlutum sem eru
    ekki inni í þessu þannig að útgjöldin eiga eftir að aukast, nema við gerum
    alvörutiltekt í meðförum þingsins. Þessi ríkisstjórn virðist ekki ráða við
    það þannig að ég hvet hv. fjárlaganefnd til að taka upp fjárlögin, fara
    ofan í stóru málaflokkana, draga úr ríkisútgjöldum <ns:bjalla/> og auka
    ekki skattbyrði á heimili landsins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>