<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:40:46" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:42:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:40:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Þetta er nefnilega alveg
    rétt. Hvað gera sveitarfélögin? Alla vega er ríkið ekki að ganga á undan
    með góðu fordæmi. Svo mæta forsvarsmenn þessarar ríkisstjórnar einnig og
    biðja einkafyrirtæki að halda að sér höndum með hækkanir en ríkið ætlar
    sko að fá allt sitt. Þetta er með ólíkindum og það liggur fyrir að þau eru
    að gera aftur sömu mistökin. Verðbólgan fór af stað út af þessu í fyrra;
    hún mun gera það aftur. Svo kemur hæstv. fjármálaráðherra og talar um að
    skuldir séu að aukast út af verðbólgunni. Hvernig væri að hann myndi bara
    hlusta á sjálfan sig og sjá hvað er búið að gerast á þessu ári til að gera
    ekki sömu mistökin aftur? Það er verið að gera nákvæmlega sömu mistökin,
    bara nákvæmlega eins. Hæstv. fjármálaráðherra benti á það að hann væri að
    ganga í takt við Seðlabankann, sömu orð og hann sagði í fyrra um
    gjaldskrárhækkanir. Hann sagði þetta líka í fyrra. Það er svolítið
    mikilvægur hlutur sem ég neita að trúa að hagfræðiprófessorinn viti ekki;
    að þetta gæti bara gengið ef ekki væri verið að auka útgjöld ríkissjóðs á
    sama tíma. Þá mögulega gæti hann nýtt þetta sem einhvers konar aðhald. En
    það er ekki í anda þessarar ríkisstjórnar að sýna aðhald á öðrum sviðum.
    Nei, hún er með þessar krónutöluhækkanir og á sama tíma að auka útgjöld og
    hækka skatta. Þetta er mjög slæm blanda. Við erum búin að finna fyrir
    þessu einu sinni og ég trúi varla að þetta verði raunin, að þetta eigi að
    ganga yfir landsmenn aftur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>