<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:42:47" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:44:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:42:47">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég held að það sé nefnilega ótrúlega stór spurning
    í þessu. Þetta er það sem maður hefur verið að fá hringingar um í vikunni,
    þar eru sveitarstjórnarmenn að hugsa: Bíddu, hvað gerum við í okkar
    fjárhagsáætlanagerð — sem verið er að vinna að núna á fullu, er sums
    staðar að hefjast núna — þegar ríkið setur markið við þessi 5,2% og það er
    ekki verið að fara eftir verðbólgumarkmiði Seðlabankans? Hvað eigum við að
    gera? Er ekki langlíklegast að sveitarfélögin fari bara sömu leið og í
    kjarasamningagerð og því sem verið er að gera, fari eftir þessu markmiði
    sem ríkisstjórnin er með? Það vilja allir tryggja sitt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á síðustu árum í framlögðum fjárlögum, á tímabilinu 2017–2024,
    þegar verið var að vinna í fjárlagagerðinni var mjög oft jafnvel ekki
    hækkað neitt, eins og var kannski eitt árið, en almennt var verið að setja
    2,5% í fjárlagagerðinni, þegar við vorum að ræða fjárlagafrumvarpið. Þetta
    er svolítið skipbrot, finnst mér, svona miðað við hvernig hefur verið
    unnið að þessu raunverulega í töluverðan tíma þar sem menn hafa virkilega
    verið að reyna að berjast við verðbólguna. Svo vil ég taka undir með hv.
    þingmanni að þau fjárlög sem voru samþykkt hér haustið 2024 fyrir árið
    2025 áttu alla möguleika á því að verða hallalaus, ef vel hefði verið
    haldið utan um málið. En það sem gerðist var að það var bætt gríðarlega í,
    það voru fimm fjáraukar á árinu 2025 við þau fjárlög. Svo komu fjárlögin í
    fyrra þar sem bætt var 143 milljörðum við eins og kom fram í máli hv.
    þingmanns. Það er ekki hægt að segja að hér hafi verið unnið eftir þeim
    reglum að reyna að halda niðri verðbólgu í þessu landi eins og
    ríkisstjórnin talar um að sé aðalmarkmið hennar, <ns:bjalla/> að vinna
    niður verðbólguna og lækka vexti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>