<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:45:04" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:47:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:45:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka seinna andsvarið. Ég verð að fá að taka
    undir með hv. þingmanni að ég yrði ekki hissa ef sveitarfélögin færu í
    sömu hækkanir og auðvitað fleiri aðilar vegna þess að fólk þarf að tryggja
    sitt. Það hefði þess vegna verið mjög mikilvægt að ríkisstjórnin hefði
    gengið á undan með góðu fordæmi og þetta væri samvinnuverkefni okkar allra
    að ná þessu niður. En ríkisstjórnin er búin að gefa það út að hún ætlar
    ekki að taka þátt, hún ætlar að fara langt með hækkanir, langt umfram
    verðbólgumarkmið. Og það er í raun og veru bara sorglegt. Við sjáum það
    líka á árinu 2026. Ég held að það sé ástæða fyrir því að við erum ekki
    búin að fá að sjá sex mánaða uppgjörið, stöðugleikareglan er örugglega
    löngu brostin. Þetta er í raun og veru sorglegt á svo margan hátt en
    sérstaklega, eins og hv. þingmaður benti á, af því að þetta var að fara í
    rétta átt. Þessi ríkisstjórn var með alveg einstakt umboð til að vera í
    raun og veru hörð. Þau lofuðu sleggjunni, þau lofuðu að taka til og ná
    niður vöxtum og verðbólgu. Fólkið í landinu sem kaus þessa flokka, og
    sennilega flestir, var tilbúið að standa við bakið á ríkisstjórninni í
    þeirri vegferð. Það er ótrúlegt að hafa alla með sér í því að taka til í
    ríkisfjármálum. En ríkisstjórnin nýtti það ekki heldur ákvað að fara í
    vegferð útgjaldaaukningar og óráðsíu á svo ofboðslega margan hátt. Þó að
    eitthvað sé aðhaldið er það, eins og við höfum farið yfir, bara smávægileg
    forgangsröðun því að á endanum er þetta útgjaldaaukning.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>