<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:47:19" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:48:55 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:47:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur
    fyrir sköruglega ræðu. Hún virðist ekki vera haldin neinum
    hallaleysisótta, eins og sumir í stjórnarandstöðunni sem hafa bæði boðað
    að draga úr tekjuöflunarleiðum sem frumvarpið boðar og síðan jafnvel
    viljað að bætt verði í útgjöld. Það hefur komið fram hér fyrr í umræðunni.
    Mér þætti fróðlegt að fá hér afstöðu hv. þingmanns, hvar hún vilji þá
    skera niður. Eru það hjúkrunarheimilin sem er verið að bæta í? Eru það
    kjör eldri borgara? Gott ef flokkurinn hefur ekki verið á móti því. Hvaða
    liðir eru það sem eru umtalsverðir þar sem Miðflokkurinn hyggst ná fram
    verulegum breytingum? Ég vil bara taka það fram, vegna þess að það var
    nefnt hérna í umræðunni, að við munum í fjárlaganefndinni taka allar
    tillögur málefnalega til skoðunar, hvaðan sem þær koma, því að við erum
    hér að ræða um fjárlög ríkisins og auðvitað eigum við að vera með opinn
    hug og taka við þeim tillögum, hvort sem þær eru um niðurskurð eða auknar
    tekjur, hvar er hægt að ná í auknar tekjur eða stækka kökuna. Þess vegna
    erum við með þetta starf í nefndinni. Það væri þarft ef hv. þingmaður gæti
    hér komið með einhverja tillögu sem munaði þá verulega um og gæti nýst í
    umfjöllun um málið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>