<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:49:04" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:51:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:49:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að fá að svara
    þessari spurningu og taka þátt í því. Ég vona þá að hann meini það sem
    hann segir, að hann ætli að taka tillit til þess ef honum líst á
    tillögurnar. Ég ætla að byrja á því að segja að þetta snýr ekki að því að
    ég vilji engin ríkisútgjöld. Ég ætla t.d. að halda því hér fram að mér
    hefði ekki dottið í hug að skerða framlög til Ljóssins, það hefði mér ekki
    dottið í hug. Hins vegar er þessi ríkisstjórn algerlega að skila 0 í því
    að taka til í stóru málaflokkunum. Tökum eitt dæmi sem var í fréttum í
    gær. Einn bótaflokkur, einn: örorkulífeyriskerfið. Þar sjáum við að á sjö
    árum er flokkurinn búinn að tvöfaldast. Útgjöld ríkissjóðs til þessa
    málaflokks hafa tvöfaldast, hátt í 60 milljarða aukning. Ég held að það
    væri nær að skoða þessa stóru flokka — þetta er einn bótaflokkur — og
    velta fyrir sér: Hvað er að gerast? Jú, við fengum einhverja tölu frá
    ráðuneytinu og þá liggur það fyrir að fjölgun bótaþega er gríðarleg,
    fjölgun erlendra aðila á bótum er gríðarleg og ákveðnar þjóðir eru fjórum
    sinnum líklegri til að þiggja bætur frá íslenska ríkinu en Íslendingar.
    Það segir einhverja sögu. Það segir að við þurfum að skoða hvað er í
    gangi. Svo má taka hagræðingartillögurnar, sem voru í þúsundatali, inn í
    nefnd fjárlaganefndar og vinna eitthvað með þær. Þannig að við erum að
    tala um flokka með tugi milljarða sem eru gegndarlausir og stjórnlausir
    <ns:bjalla/> málaflokkar. Og í bónus þá myndi ég nú draga úr umsvifum
    Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði og þar getur hæstv. formaður
    fjárlaganefndar náð sér í nokkra milljarða.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>