<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:51:34" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:53:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:51:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka fyrir þessar tillögur. Ég vil benda á að
    við í Flokki fólksins höfum einmitt óskað eftir því að það sé aukið
    gagnsæi hvað varðar málefni útlendinga, eins og mér heyrðist hv. þingmaður
    vera að ýja að að þyrfti að vera meira, og m.a. að skoða þá
    atvinnuþátttöku, framfærslu og fleiri þætti, líkt og Danir gera. Ég hef
    verið talsmaður þess vegna þess að það er jákvætt. En aðalatriði í stefnu
    okkar í Flokki fólksins, sem ég tel skipta máli, er að koma fólki, sem er
    ekki í virkni, í aukna virkni. Að reyna að nýta krafta þeirra sem eru
    komnir á tímabundna örorku þannig að þau skapi samfélaginu verðmæti með
    þátttöku sinni. Það gleður fólk. Ég held að það sé mjög jákvæð stefna og
    mér finnst að við þurfum að nálgast einmitt þennan hóp með jákvæðni og að
    auka virkni þess.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Auðvitað er ágætt að fara yfir alla hluti en mér finnst samt sem
    áður skorta nokkuð kjöt á beinin í þeim tillögum sem hafa komið fram í
    umræðunni hjá stjórnarandstöðunni. En allar tillögur eru vel þegnar og við
    í fjárlaganefndinni munum örugglega fara yfir tillögur hv. þingmanns eins
    og annarra til þess að þær nýtist þjóðinni til gagns.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>