<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T17:53:35" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 17:55:48 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T17:53:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Hv. þingmanni þótti skorta kjöt á beinið hjá einhverjum
    þingmönnum en mér heyrist samt hann vera sammála mér. Ég er ánægð að heyra
    að við séum sammála um að það þurfi að taka á þessum málaflokki, þ.e.
    útlendingamálum, sem eru í raun og veru inni í öllum málaflokkum. Það sem
    ég vildi hins vegar benda á, af því að nú á ég orðastað við hv. þingmann
    úr Flokki fólksins, er að í þessu frumvarpi sé ég hvergi neinn jólabónus.
    Þar erum við að tala um nokkra milljarða sem hann þarf alla vega að finna
    ef þið ætlið að standa við það loforð, nema þið ætlið að svíkja það eins
    og öll önnur loforð sem þessi ríkisstjórn hefur gefið. Þetta er nefnilega
    forgangsröðun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrst ég hef þennan tíma vil ég líka benda á, þar sem hv. þingmenn
    meiri hlutans, bara allir þingmenn meiri hlutans, hafa ítrekað komið hér
    upp og eru agalega ánægðir með bankaskattinn, að hann er aldrei settur í
    samhengi við neitt. Það er bara talað um hvað þeir hagnast. Svo er verið
    að tala um að það sé allt í lagi að skattleggja hagnað. Þið eruð ekki að
    skattleggja hagnað bankanna, þið eruð að skattleggja skuldirnar. Þannig er
    reiknireglan á þessu eða í raun og veru bara stærðin á
    efnahagsreikningnum. Í því samhengi vil ég benda á, af því að það er
    aldrei verið að tala um samhengið, að hagnaður bankanna jafngildir 1,7%
    hagnaði miðað við heildareignir og 12,4% arðsemi, sem er raunávöxtun upp á
    8% í því vaxtaumhverfi sem við búum við, þar sem við getum nánast sett
    peninginn inn á bankabók til að fá þá vexti. Þannig að ég held að það sé
    eðlileg krafa <ns:bjalla/> að hv. þingmaður svari því: Hvað mega
    fyrirtækin í þessu landi hagnast áður en ríkissjóður kemur og ætlar að
    skattleggja það í drep?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>