<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:02:03" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:07:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:02:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er með ánægju að við fjöllum hér í dag um
    fjárlagafrumvarp sem færir okkur á umtalsvert betri stað fyrir íslenskt
    efnahagslíf. Nú höfum við horft upp á hallarekstur í að verða um áratug
    sem hófst árið 2019 og hefur orðið til þess að ríkið hefur safnað upp um
    800 milljarða kr. halla sem hefur gert það að verkum að þrátt fyrir að við
    séum að fara úr mínus í eilítinn plús á þessu ári þá mun ríkisstjórnin
    áfram þurfa að eiga við það verkefni að fjármagna þessar skuldir. Þegar ég
    kom fyrst inn í þingið á síðasta kjörtímabili var mikil áhersla lögð á að
    ná frumjöfnuði. Fyrrverandi fjármálaráðherra lagði mikla áherslu á að
    jafnvægi myndi nást í ríkisrekstrinum að frátöldum vaxtagjöldum. Nú er
    frumjöfnuðurinn um 100 milljarðar í plús. Við erum hins vegar komin á þann
    stað núna að hallalaus fjárlög upp á 5 milljarða kr. er mikið afrek. Ég
    hef hins vegar heyrt talað um að staða skulda, sem hefur hækkað á
    undanförnum árum, geri það að verkum að lánsfjárjöfnuður sé enn neikvæður
    og það er bara verkefni sem við erum að eiga við næstu árin. Þetta eru
    skuldirnar sem voru skildar eftir eftir síðasta kjörtímabil og þess vegna
    skiptir svo gríðarlega miklu máli að við leggjum á það áherslu næstu árin
    og mánuðina að viðhalda þessari stöðu. Mig langar líka út frá
    skuldastöðunni að vekja athygli á því að það er vissulega þannig að
    skuldir eru í kringum 37 eða 38% af landsframleiðslu en þeir sem taka vel
    eftir í bókhaldinu sjá að þar hafa bæst við áhrif á A1-hluta ríkissjóðs
    vegna uppgjörs okkar á ÍL-sjóði sem til lengri tíma og heilt yfir er að
    styrkja þjóðarbúið og er að styrkja heildarskuldastöðu hins opinbera
    þannig að skuldastaðan er í raun mun betri en virðist vera.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla ekkert að draga fjöður yfir það að það er ekki auðvelt að
    skila hallalausum fjárlögum eftir minna en tveggja ára kjörtímabil, það
    eru um 20 mánuðir síðan þessi ríkisstjórn tók við. Það er ýmislegt sem
    kemur upp á þegar þú ferð að opna bókhaldið. Það eru ýmsir veikleikar sem
    koma fram sem tekur tíma að átta sig á, til að mynda veikleikar í ákveðnum
    aga þegar kemur að tilfærslukerfum. Og þetta er eitthvað sem er
    sérstaklega verið að skoða núna í fjármálaráðuneytinu. Ég má til með að
    nefna að þrátt fyrir að mikill árangur hafi náðst í heilbrigðiskerfinu á
    undanförnu ári — samanber nýja frétt frá Landspítala um stöðuna á
    bráðamóttökunni, um að nú séu það einungis 50 sjúklingar sem þurfi á
    hjúkrun eða sjúkrahúsinnlögn að halda — þá er það þannig að kjarasamningar
    sem voru gerðir á síðasta kjörtímabili, í raun bara tveimur til þremur
    dögum fyrir kosningar, voru það vanfjármagnaðir við sérfræðilækna og við
    lækna á heilbrigðisstofnunum að það hefur skilið eftir sig stórt gat í
    rekstri þessara heilbrigðisstofnana. Þetta er eitt af þeim verkefnum sem
    við höfum tekið í fangið og höfum verið að finna út úr. En ég treysti
    engum betur en hæstv. heilbrigðisráðherra til að sinna þessu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þrátt fyrir að við séum komin á þennan stað núna, að ná úr mínus
    yfir í plús, sem verður ærið verkefni að standa við, þá er samt ýmislegt
    sem hefur gerst, ekki bara á síðustu tveimur árum sem við höfum verið að
    vinna að þessu heldur líka nú á næsta ári. Þá erum við að stefna í að
    viðhalda þessu stóraukna fjárfestingarstigi í samgöngum. Við fórum til að
    mynda úr 12 eða 13 milljörðum í hátt í 17 milljarða í viðhald vega á einu
    ári. Strax á fyrsta árinu okkar bættum við 3 milljörðum við og við erum að
    viðhalda þessu núna á þessu ári. Þetta skiptir alveg gríðarlega miklu
    máli. Við erum líka búin að klára stofnun á innviðafélagi sem mun stórauka
    slagkraft okkar þegar kemur að samgöngum og þetta bætist auðvitað við. Svo
    má ég til með að nefna að á þessu ári munum við sjá greiðslur
    almannatrygginga hækka um 7,3% út af nýrri lagasetningu sem kláraðist hér
    í vor þegar við ákváðum að uppfylla kosningaloforð þessara
    ríkisstjórnarflokka um að lífeyrir fylgi launum. Ef við hefðum ekki verið
    með þá bindingu frá því í vor væri hækkunin um 4%. Þarna er ég t.d. búin
    að nefna tvo mjög mikilvæga málaflokka þar sem við erum sannarlega að
    standa við gefin loforð en við erum líka að passa upp á það að halda
    rekstrinum réttum megin við núllið. Eins og ég segi, þegar þú ert kominn
    með stabba af skuldum eins og við erum að erfa þá ertu að borga um 150–160
    milljarða af vaxtagjöldum á ári. Við þurfum að sinna því þannig að
    verkefnin eru ærin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>