<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:07:26" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:09:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:07:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er göfugt að stefna að hallalausum
    fjárlögum og við Sjálfstæðismenn styðjum það markmið. En það skiptir öllu
    máli hvernig því er náð og hver borgar reikninginn. Í þessu frumvarpi nema
    skatta- og gjaldahækkanir um 34 milljörðum kr. Ríkisstjórnin réttlætir
    tekjuöflunina með því að þau sem hafa mesta burði eigi að leggja sitt af
    mörkum. En þegar við lesum frumvarpið kemur í ljós að reikningurinn fer
    líka beint til venjulegs fólks í landinu. Tekjuskattur einstaklinga á að
    verða rúmum 3 milljörðum kr. hærri en hann yrði í óbreyttu kerfi. Það á að
    breyta reglunum um hækkun persónuafsláttar og skattþrepa þannig að fólk
    greiði meira en ella. Skattprósentan þarf ekkert að hækka til að ríkið
    taki meira til sín. Í greinargerðinni er þetta m.a. rökstutt með því að
    skattbyrði hafi farið lækkandi án þess að það hafi verið ætlunin. Ég tel
    það jákvætt þegar fólk fær að halda meiru eftir af eigin tekjum, af sínu
    sjálfsaflafé, en ríkisstjórnin virðist líta á það sem vandamál sem þurfi
    að leiðrétta. Við eigum að leysa efnahagsverkefnin sjálf. Það krefst þess
    að ríkisstjórnin fari betur með fjármuni og treysti fólki og fyrirtækjum
    til að skapa verðmæti. Þessari ábyrgð verður ekki sinnt með sífellt meiri
    skattheimtu. Ég vil því spyrja: Hvers vegna telur forsætisráðherra rétt að
    taka meira af launum fólks sem hún var búin að lofa að létta byrðunum
    af?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>