<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:09:19" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:11:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:09:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta
    er sannarlega áhugaverð staða sem við finnum okkur í. Þegar þessi
    ríkisstjórn hóf störf vorum við að koma út úr sjö eða átta ára tímabili
    þar sem hagvöxtur í íslensku hagkerfi var 0% á mann. Á sama tíma var
    vissulega kaupmáttaraukning og því ber að þakka ötulli vinnu
    verkalýðshreyfingarinnar. Það hefur reyndar líka verið kaupmáttaraukning á
    fyrstu tveimur árum þessarar ríkisstjórnar. Þetta hefur gert það að verkum
    að ríkið hefur að hluta til verið að taka velferð og útgjöld og
    augljóslega laun að láni. Þegar farið var í breytingar á þessum
    framleiðniviðmiðum — þ.e. þau fest í sessi vegna þess að það var ekki
    þannig áður að þetta væri í lögum með þessum hætti. Fjármálaráðuneytið og
    Alþingi í kjölfarið — þetta var bara samþykkt í öðrum hópi, þetta var ekki
    lagasetning af þessu tagi. Þá var tekin sú ákvörðun að þetta ætti að
    fylgja vísitölu verðlags og framleiðni og að framleiðniaukning yrði um 1%
    í hagkerfinu. Hér varð engin 1% framleiðniaukning. Það var 0% hagvöxtur á
    mann í átta ár. Það var engin verðmætasköpun á mann hvað þetta varðar
    þegar kemur að kökunni. Þetta hefur gert það að verkum að það var
    eftirgjöf af tekjum og auðvitað get ég alveg tekið undir það að það vill
    enginn fara í óþarfa innheimtu á sköttum. Við erum hins vegar að horfast í
    augu við það að hér var ríkisstjórn sem skilaði 850 milljarða uppsöfnuðum
    skuldum og einhvern veginn þarf að loka því gati. Af 80 milljarða
    aðhaldsaðgerðum eru um 44 milljarðar á útgjaldahliðinni. Þetta eru mestu
    útgjaldaráðstafanir sem hafa sést í 10–15 ár. Vissulega er það rétt að við
    förum þá leið að leiðrétta þetta, að þessi framleiðni hefur ekki staðið
    undir tekjuskattsmörkunum, en vonandi sjáum við fram á breytta tíma með
    nýrri atvinnustefnu stjórnvalda.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>