<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:11:37" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:12:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:11:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að hefja þennan þingvetur og
    verða ljóst að lítið hefur breyst frá síðasta þingvetri hvað það varðar að
    hér svara ráðherrar aldrei þeim spurningum sem til þeirra er beint. En við
    skulum þá skoða nánar aðhaldið sem ríkisstjórnin boðar og athuga hvort
    forsætisráðherra svari því sem spurt er um. Af 44 milljörðum í
    útgjaldaráðstöfunum eru tæpir 26 milljarðar á fjárfestingarhlið.
    Frumvarpið segir að talsverður hluti ráðstafananna felist í breyttri
    tímasetningu fjárveitinga og geti kallað á auknar heimildir síðar. Það
    getur verið skynsamlegt að nýta ónýttar fjárheimildir en þá hefur
    heildarkostnaður verkefnisins ekki endilega lækkað. Við styðjum sameiningu
    stofnana og betri opinber innkaup. Þar þarf að ná varanlegum árangri sem
    dregur úr þörfinni fyrir nýjar álögur. En ef hluta kostnaðarins er aðeins
    frestað, hvernig ætlar ríkisstjórnin þá að standa undir honum síðar? Með
    enn frekari skattahækkunum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>